SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni, er vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. Verkefnið er hluti af Safer Internet Action Plan, aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um öruggari netnotkun og er styrkt af ESB. Samningsaðili við ESB er Heimili og skóli - landssamtök foreldra, sem sér um að annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins í formlegu samstarfi við Lýðheilsustöð og Barnaheill - Save the Children Iceland.
SAFT er í samstarfi við önnur lönd í Evrópu og deilir með þeim upplýsingum, aðferðafræði og þekkingu. Markmiðið er að til verði sameiginlegur evrópskur sjóður þekkingar og aðferðafræði á þessu sviði sem styður hið jákvæða og hamlar gegn neikvæðum hliðum upplýsingatækninnar.
Verkefnastjórar
Gudberg K. Jonsson (Technical coordinator and program manager)
Hrefna Sigurjónsdóttir, Heimili og skóli (project manager Awereness)
Margrét Júlía Rafnsdóttir, Barnaheill - Save the Children Iceland (project manager Hotline)
Jenný Ingudóttir, Lýðheilsustöð (project manager Helpline)
Í verkefnastjór SAFT sitja Guðberg K. Jónsson, formaður; Ketill Magnússon, formaður Heimilis og skóla; Guðni Olgeirsson, Menntamálaráðuneytið; Sólveig Jakobsdóttir, Menntavísindasvið, Háskóli Íslands; Jenný Ingudóttir, Lýðheilsustöð; Margrét Júlía Rafnsdóttir, Barnaheill, Save the Children Iceland, Hrefna Sigurjónsdóttir, Heimili og skóli, og Ólafur Elínarson, Capacent Gallup.