SAFT – Samfélag, fjölskylda og tækni, er vakningarátak um örugga og jákvæða tölvu- og nýmiðlanotkun barna og unglinga á Íslandi. Verkefnið er hluti af Safer Internet Programme, aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um öruggari netnotkun og er styrkt af framkvæmdastjórn ESB. Samningsaðili við ESB er Heimili og skóli – landssamtök foreldra, sem sér um að annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins í formlegu samstarfi við Rauða krossinn, Ríkislögreglustjóra og Barnaheill – Save the Children Iceland.
SAFT er í samstarfi við önnur lönd í Evrópu og deilir með þeim upplýsingum, aðferðafræði og þekkingu. Markmiðið er að til verði sameiginlegur evrópskur sjóður þekkingar og aðferðafræði á þessu sviði sem styður hið jákvæða og spornar gegn neikvæðum hliðum upplýsingatækninnar.
Verkefnastjórar
- Gudberg K. Jonsson (Technical coordinator and program manager)
- Hrefna Sigurjónsdóttir, Heimili og skóli (project manager Awereness)
- Björn Rúnar Egilsson, Heimili og skóli & SAFT (project manager Awareness and Youth Panel)
- Margrét Júlía Rafnsdóttir, Barnaheill – Save the Children Iceland (project manager Hotline)
- Haukur Árni Hjartarson, Reykjarvíkurdeild Rauða krossins (project manager Helpline)
- Hjálmar V. Björgvinsson, Ríkislögreglustjóri (project manager Hotline)
Í verkefnastjórn SAFT sitja Guðberg K. Jónsson, formaður; Ketill Magnússon, formaður Heimilis og skóla; Guðni Olgeirsson, Menntamálaráðuneytið; Vera Sveinbjörnsdóttir, Innanríkisráðuneytið; Þór Þórarinsson, Velferðarráðuneytið; Haukur Árni Hjartarson, Reykjarvíkurdeild Rauða krossins; Margrét Júlía Rafnsdóttir, Barnaheill, Save the Children Iceland, Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla; Anna M. Sigurðardóttir, Póst- og fjarskiptastofnun; og Elfa Gylfadóttir, Fjölmiðlanefnd.
Til hvers er SAFT?
- Að hanna og framkvæma markvisst vakningarátak um örugga og ábyrga notkun á Netinu og tengdum miðlum.
- Að efla vitund um hvernig hægt er að njóta Netsins og nýrra miðla á öruggan, jákvæðan, skemmtilegan og fræðandi hátt.
Markhópar
- Börn og unglingar
- Foreldrar
- Skólakerfið
- Netþjónustuaðilar
Áherslur
- Siðferði á netinu
- Persónuvernd
- Fjölmiðlalæsi /gagnrýni á netið
- Farsímaöryggi
- Tölvuleikir
Leiðir
- Dreifing kennsluefnis í grunnskóla og viðbætur við það sem fyrir er á þessari vefsíðu.
- Fræðsla meðal unglinga, m.a. með jafningjafræðslu.
- Markvisst fræðslu- og upplýsingaátak fyrir foreldra svo þeir verði betur í stakk búnir til að fræða börn sín og njóta Netsins og nýrra miðla með þeim.
- Víðtækt samstarf – samræmt átak á landsvísu við aðila innan stjórnsýslunnar, þá sem koma að menntun og tómstundastarfi barna og unglinga, netþjónustuaðila, forvarnaraðila, foreldra, fjölmiðla og börn og unglinga.
- Söfnun og dreifing upplýsinga t.d. um notkun tölvuleikja meðal barna, um hvort munur er á notkun kynjanna á Netinu og nýjum miðlum og um mismunandi notkun þessara miðla í eldri og yngri hópum barna.
Samstarfsaðilar á Ísland
| Barnaheill | Persónuvernd |
| Barnaverndarstofa | Póst- og fjarskiptast. |
| Capacent | Rannsóknir og greining |
| Fjölmiðlanefnd | Rauði Krossinn |
| Forsætisráðuneytið, Skrifstofa upplýsingasamfélagsins | Ríkislögreglustjóri |
| Fulltrúar ungmennaráðs | RUV |
| Félag um stafrænt frelsi á Íslandi | Innanríkisráðuneytið |
| Fulltrúi foreldrafélaga | Síminn |
| Game tíví | Advania |
| HÍ | Smáís |
| Icelandic Gaming Industry | Talsmaður neytenda |
| Kynferðisbrotadeild lögreglustjórans á höfuðborgasvæðinu | Umboðsmaður barna |
| Embætti landlæknis | Upplýsingat. kennarar |
| Menntamálaráðuneytið | Videntifier |
| Microsoft | Vodafone |
| Miðlar 365 | Háskólinn Akureyri / EuKidsOnline |
| Námsgagnastofnun | Velferðarráðuneytið |
| Neytendasamtökin |
Nánar um Evrópusamstarfið
SAFT er vakningarátak um örugga notkun íslenskra barna og unglinga á Netinu og tengdum miðlum. Verkefnið er unnið innan aðgerðaáætlunar Evrópusambandsins um aukið öryggi á Netinu (SIAP- Safer Internet Action Plan) og nýtur þaðan fjárstuðnings.
SAFT er í nánu samstarfi við önnur lönd í Evrópu sem eru aðilar að SIAP og er sérstaklega lögð áhersla á samnorræna samvinnu, en alls eru þátttökulöndin 30. Hver þjóð vinnur í sínu landi og á sínum forsendum en samstarf þjóðanna felst fyrst og fremst í að deila þekkingu og aðferðafræði þannig að til verði sameiginlegur brunnur fróðleiks og þekkingar um hvernig best er að vinna að öruggri og jákvæðri notkun barna og unglinga á Netinu og þeim miðlum sem því tengjast.
Samstarfsnet þjóðanna sem þátt taka í verkefninu ber heitið Insafe. Á Alþjóðlega netöryggisdaginn 8. febrúar 2005 var opnuð vefgáttin www.saferinternet.org. Þar eru upplýsingar um þátttökuþjóðirnar í verkefninu og þau verkefni sem verið er að vinna í hverju landi.
About Insafe

Insafe, a European Commission funded project, is a network of national nodes that coordinate Internet safety awareness in Europe to help parents and teachers guide children in safe exploration of the World.
Insafe Mission Statement
The mission of the Insafe cooperation network is to empower citizens to use the internet, as well as other online technologies, positively, safely and effectively. The network calls for shared responsibility for the protection of the rights and needs of citizens, in particular children and youths, by government, educators, parents, media, industry and all other relevant actors. Insafe partners work closely together to share best practice, information and resources. The network interacts with industry, schools and families in the aim of empowering people to bridge the digital divide between home and school and between generations.
Insafe partners monitor and address emerging trends, while seeking to reinforce the image of the web as a place to learn. They endeavour to raise awareness about reporting harmful or illegal content and services. Through close cooperation between partners and other actors, Insafe aims to raise Internet safety-awareness standards and support the development of information literacy for all.
Visit Europe’s internet safety portal here





Facebook
YouTube

