Merkingar PEGI

Aldursflokkunarkerfi Pan European Games Information (PEGI) er nýtt samevrópskt flokkunarkerfi til að setja aldursmörk fyrir gagnvirka leiki. Kerfinu er ætlað að tryggja að ólögráða börn fari ekki í leiki sem eru ekki við hæfi þeirra aldurshóps. Kerfið nýtur stuðnings framleiðenda á leikjatölvum, þar á meðal PlayStation, Xbox og Nintendo, sem og útgefenda og þróunaraðila gagnvirkra leikja um alla Evrópu. Evrópusamtökin um gagnvirkan hugbúnað (Interactive Software Federation of Europe, eða ISFE) þróuðu flokkunarkerfið. Kerfið nýtur dyggs stuðnings framkvæmdastjórnar Evrópubandalagsins, sem telur það vera fyrirmynd að samhæfingu á sviði barnaverndar í Evrópu. (frá www.pegi.info)

Smelltu hér til að lesa meira um flokkunarkefið.


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum