Í september 2005 var gerð fyrir SAFT könnun á
tölvuleikjanotkun íslenskra barna á aldrinum 9 - 16 ára. Könnunin var
gerð af Rannsóknum og greiningu.
Þar kom m.a. fram að margi foreldrar þekktu lítið eða ekkert til þeirra tölvuleikja sem börnin þeirra væru að spila.
Í framhaldi af niðurstöðum könnunarinnar stóð SAFT fyrir fjölmiðla-
og auglýsingaátaki um mismunandi eðli tölvuleikja og nauðsyn þess að
þekkja PEGI aldursflokka- og innihaldsmerkingarnar sem eru á flestum
tölvuleikjum sem seldir eru hérlendis. Átakið var unnið í samstarfi
við SMÁÍS - Samtök myndrétthafa á Íslandi og með stuðningi
menntamálaráðuneytisins, Microsoft og PEGI (Pan European Games
Information).
Einnig var kynningarbæklingurinn Fyrir hvern er tölvuleikurinn? sendur heim til foreldra allra grunnskólabarna með aðstoð grunnskólanna í landinu.
Fyrir og eftir átakið gerði Gallup fyrir SAFT könnun á þekkingu fullorðinna á PEGI merkingum á tölvuleikjum.
Með því að smella á myndina hér fyrir neðan opnast
pdf skjal með skýrslu um helstu niðurstöður kannana um
tölvuleikjanotkun barna og þekkingu fullorðinna á PEGI merkingunum.
Skýrslan er á ensku
