KANNAÐU PEGI MERKINGAR LEIKSINS ÁÐUR EN ÞÚ KAUPIR HANN !
Hér má nálgast bæklinginn "Fyrir hvern er tölvuleikurinn".

Hér má nálgast hreyfimynd af tölvuleikjaauglýsingu (wmv)
Hér má nálgast hreyfimynd af tölvuleikjaauglýsingu (mov)


Tölvuleikir eru ekki bara barnaefni

Tölvuleikir af ýmsu tagi eru sjálfsagður þáttur í lífi barna nútímans, þáttur sem foreldrar þurfa að þekkja ekki síður en aðra þætti í lífi barna sinna. Í september 2005 var gerð á vegum SAFT verkefnisins könnun á notkun tölvuleikja meðal 9 – 16 ára barna á Íslandi. Tekið var slembiúrtak af landinu öllu og spurningalisti lagður fyrir u.þ.b. 1000 grunnskólanemendur sem lentu í úrtakinu. Rannsóknir og greining framkvæmdi könnunina fyrir SAFT.

Úr niðurstöðum könnunarinnar:

Margir foreldrar þekkja lítið eða ekkert til tölvuleikjanna sem börn þeirra leika
Af þeim sem svöruðu sögðu yfir fjórðungur (27,2%) barnanna að foreldrar sínir þekktu frekar lítið eða mjög lítið til þeirra leikja sem þau leika í leikjatölvum.
Foreldrar virðast þekkja enn minna til netleikjanna sem börnin leika því um 40% barnanna sögðu foreldra sína þekkja frekar lítið eða mjög lítið til netleikja þeirra.
Betur virðist þó fylgst með stúlkum en drengjum, því þetta á við um 35.8% stúlkna en 44.8% drengja.

Mörg börn eyða meira en einum vinnudegi í viku í tölvuleiki
Fjórðungur barna segjast eyða 3 – 14 klst. á viku í tölvuleiki í leikjatölvum (19,9%) og á Netinu (20,4%)
13, 9% barna eyða meira en 6 klst. á viku í netleiki, þar af 4,2% meira en 15 klst.
12% barna eyða meira 6 klst á viku í leikjatölvum, þar af 3,2% meira en 15 klst

Börn leika tölvuleiki mest heima
Netleikir: 68% sögðust alltaf eða oftast leika netleiki heima.
Leikjatölvur, ónettengdar: 73% leika alltaf eða oftast heima.

Foreldrar og börnin sjálf kaupa tölvuleikina
Rúmlega helmingur (52,2%) barna á aldrinum 9 -12 ára segja foreldra sína oftast kaupa tölvuleiki, rúmur fimmtungur (22,4%) segjast oftast kaupa þá sjálf.
Drengir (47,6%) eru líklegri til að kaupa tölvuleiki sjálfir heldur en stúlkur (16%).
Stúlkur (50,5%) eru líklegri til að fá þá leiki sem þær spila frá foreldrum en drengir (37,4%).
Mun fleiri eldri börn,13-16 ára, segjast kaupa leikina sína sjálf.

Alls hefur þriðjungur barna keypt leiki sem ekki eru ætlaðir þeirra aldurshóp
Meðal barna á aldrinum 9-12 ára hefur fjórðungur (25,4%) keypt leiki sem ekki eru ætlaðir fyrir þeirra aldurshóp.
Um 22% barna á aldrinum 9-12 ára og rúm 44% 13-16 ára barna athuga aldrei hvort leikurinn er ætlaður fyrir þeirra aldurshóp.

TÖLVULEIKIR – EKKI BARA BARNAEFNI!
Tölvuleikir eru hluti af tölvu- og tækniheimi nútímans. Mjög oft eru fyrstu kynni barna af tölvum í gegn um tölvuleiki og þeir eru vinsæl afþreying. Á tölvuleikjamarkaðnum er fjölbreytt úrval leikja og innihald þeirra er mjög mismunandi. Stór hluti tölvuleikja er alls ekki ætlaður börnum. Það er því mikilvægt að forráðamenn barns kynni sér þá leiki sem barnið leikur og sjái til þess að leikirnir hæfi þroska barnsins. Leikur á að vera skemmtilegur en á ekki að vekja ótta né fylla óþroskaðan barnshuga af ofbeldi eða öðru efni sem getur vakið vanlíðan eða komið inn ranghugmyndum.

PEGI – Aldursflokkamerkingar og innihaldsvísar
Allir nýir tölvuleikir bera aldursflokkurnarkerfi Pan European Games Information (PEGI), samevrópskt flokkunarkerfi sem setur aldursmörk fyrir gagnvirka leiki. Kerfinu er ætlað að tryggja að ólögráða börn fari ekki í leiki sem eru ekki við hæfi þeirra aldurshóps. Kerfið nýtur stuðnings framleiðenda á leikjatölvum, þar á meðal PlayStation, Xbox, og Nintendo, sem og útgefenda og þróunaraðila gagnvirkra leikja um alla Evrópu. Flokkunarkerfið byggir á tveimur aðskildum en samverkandi þáttum: Aldursflokkun og efnisvísum. Aldurshópar PEGI eru 3+, 7+, 12+, 16+ og 18+. Þeir gefa til kynna hvort efnislegt innihald leiksins sé skaðlegur börnum. Efnisvísar eru myndtákn aftan á hugstri leiksins sem lýsa innihaldi hans. Fjöldi efnisvísa getur verið allt upp í sex. Innihald leiksins er í samræmi við aldurflokkun hans. Saman gera aldursflokkunin og efnisvísarnir foreldrum og öðrum sem kaupa leiki handa börnum kleift að tryggja að leikurinn hæfi aldri barnanna. PEGI flokkunarkerfið segir ekki til um erfiðleikastig leikjanna. Leikur sem flokkaður er 3+ er talinn skaðlaus en gæti verið of flókinn fyrir 3 ára börn. Í verslunum með tölvuleiki eiga að vera plaköt með þýðingu merkinganna.


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum