Einn af frábærum kostum við netið eru tækifærin til samskipta. Hér áður fyrr voru samskipti einstaklinga milli landa mun takmarkaðri og gátu verið kostnaðarsöm og tekið langan tíma. Í dag getum við auk þess að senda bréf og böggla með hefðbundnum pósti haft ýmis samskipti í gegnum tölvur og farsíma. Hægt er að spjalla í gegnum forrit eins og msn, ræða málin á opnum spjallsíðum, senda tölvupósta og spjalla í hljóð og mynd í gegnum skype.
Það er ekki bara milli landa eða landsvæða sem fólk nýtir sér þessa möguleika tæknivæðingar. Einnig í daglegum samskiptum sendir fólk tölvupósta og sms eða ræðir málin á facebook.
Eins og í öðrum samskiptum þarf fólk að gæta þess hvað það segir og bera virðingu fyrir samborgurum sínum. Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar haft er í huga að það sem eitt sinn er farið á netið er ekki hægt að taka tilbaka. Þó að maður fjarlægi fljótlega efni sem hefði betur aldrei farið á netið er ekki hægt að treysta því að einhver annar hafi ekki hlaðið það niður eða tekið af því skjámynd. Nánari upplýsingar má fá á www.netsvar.is
Það er líka gott að hafa í huga að nokkur hluti samskipta tapast þegar þau eru bara skrifleg. Talið er að stór hluti samskipta eigi sér stað með líkamstjáningu. Þess vegna getur merking tapast þegar bara er um skrifleg skilaboð að ræða, til dæmis getur hæðni, eða létt grín auðveldlega lesist sem argasti dónaskapur eða skilningsleysi.
Óhætt er að segja að Íslendingar hafi tekið vel á móti Facebook samskiptasíðunni en þar er stór hluti Íslendinga með síðu.
Á Facebook getur fólk skrifað nokkrar línur út frá eigin brjósti, deilt efni eða fréttum, sett inn myndir, spjallað saman og margt fleira. Eins og notendur hafa orðið varir við hafa alltaf verið töluverðar breytingar á Facebook og því mikilvægt að fylgjast með og kanna hvernig öryggisstillingar breytast með hverri uppfærslu á Facebook.
Á Facebook er 13 ára aldurstakmark. Þeir sem eru undir 18 ára aldri fá lokaðri síðu þannig að minna aðgengi sé að þeim frá ókunnugum.
http://www.facebook.com/safety
SAFT hefur átt í góðu samstarfi við Facebook. Hér neðar má finna leiðbeiningar um notkun Facebook fyrir foreldra og leiðbeiningar um öryggi fyrir Facebook notendur sem Facebook hefur sent SAFT fyrir árið 2011 (á Ensku).
MSN
MSN er spjallforrit sem maður hleður niður á tölvuna. Þar er hægt að spjalla við einn eða fleiri í einu eftir því sem við á.
Opnar spjallsíður
Fjöldinn allur af opnum spjallsíðum er til. Þar hittast einstaklingar og ræða allt frá málefnum líðandi stundar og yfir í ákveðin áhugamál, svo sem um gæludýr eða bíla. Þetta getur verið góð leið til að geta rætt sértæk mál og finna aðra í sömu sporum.
Lokaðar spjallsíður
Lokaðar spjallsíður geta td verið síður þar sem fólk leitar sér stuðnings hjá öðrum í sömu sporum eða hópast um eitthvað ákveðið áhugamál. Hafið í huga að þó svo að trúnaður geti verið meðal notenda þá veit maður í raun aldrei hverjum hinir hópmeðlimir sýna umræðuna. Einnig er vert að hafa í huga að ef að fólk er ekki undir nafni eða hefur ekki hisst í eigin persónu þá getur verið erfitt að vita hvort að einstaklingur sé sá sem hann segist vera.
Tölvuleikir
Þegar fólk spilar tölvuleiki í gegnum netið er það oft í einhverjum samskiptum við aðra, sérstaklega þegar um er að ræða leiki þar sem raunverulegir þátttakendur sem geta verið frá ýmsum heimshornum þurfa að spila saman eða eru í liðum í leikjunum. Mikið af þessum samskiptum snýst um sjálfan tölvuleikinn og skipulag til að vinna hin liðin. Einnig geta myndast góð vinasambönd eða ástarsambönd þar sem fólk fer að hittast annars staðar en á netinu. Í þessu eins og öðru eru til einstaklingar sem misnota aðstöðuna eða fara gagngert á stúvana til þess að níðast á öðrum.
Gott er að hafa varan á og hafa í huga þau almennu ráð að hitta ekki neinn sem þú þekkir bara af netinu einn síns liðs. Alltaf að hafa einhvern með sér og hittast við öruggar aðstæður, td að degi til og á stað sem fleira fólk er.
Ef samskipti á netinu verða skaðleg er hægt að tilkynna í gegnum heimasíðu Barnaheilla (www.barnaheill.is)





Facebook
YouTube

