Hvað er rafrænt einelti
Rafrænt einelti er skilgreint líkt og annað einelti, það er þegar einstaklingur verður fyrir endurteknu neikvæðu áreiti frá öðrum einstaklingi eða einstaklingum og á erfitt með að verjast því. Í einelti er valdaójafnvægi þar sem gerandinn misbeitir valdi sínu gegn þolandanum.
Rafrænt einelti er notað yfir þá tegund eineltis þegar internetið og/eða GSM símar eru notaðir til að koma niðrandi og oft á tíðum meiðandi upplýsingum um einstakling á framfæri.
En hvað er það sem gerir rafrænt einelti hættulegt líkt og aðrar tegundir eineltis? Það er meðal annars að gerandinn getur stundað eineltið án þess að þurfa að vera í beinu sambandi við fórnarlambið. Gerandinn þarf ekki að vera sterkur eða snöggur líkt og í hefðbundnu einelti heldur einungis að hafa aðgang að GSM síma, tölvu og hafa vilja til að kvelja fórnarlambið.
Gerandi í rafrænu einelti á því betra með að leyna athæfi sínu heldur en sá sem stundar hefðbundið einelti. Þetta veldur því að oft er erfitt að verjast þessari tegund eineltis. Netið er opið alla daga, alltaf, þú getur verið nafnlaus og auðvelt er að komast í sambandi við þá sem eru á netinu (Heiða Kristín Harðardóttir og Kristrún Birgisdóttir,2009- BA ritgerð "Rafrænt einelti er ofbeldi, ofbeldi er glæpur").
Einelti sem sálfélagslegt vandamál virðist vera einn af fylgifiskum nútímasamfélags. Einelti í þeim mæli og af þeirri gerð sem það birtist í samfélaginu krefst þekkingar og árvekni ábyrgra skólastjórnenda og yfirvalda. Er mikilvægt að vinna markvisst gegn einelti á öllum skólastigum. Fræðsla, viðhorfsmótun og aðgerðastefna hvað snertir þetta alvarlega félagslega vandamál er því eitt af brýnustu viðfangsefnum sérfræðiteymis skólans í þróuðu samfélagi.
Gagnlegar vefslóðir