Öryggisboðorð fyrir foreldra og börn frá SAFT og Microsoft Íslandi

 

 

FYRIR FORELDRA

1. Ræddu við barnið hvort setja eigi upp eirlitskerfi og hvernig það eigi að vera stillt.

2. Gerðu samkomulag við barnið um netnotkun. 

3. Geymdu aðgangsupplýsingar að tölvunni á öruggum stað og skiptu reglulega um lykilorð.

4. Notaðu ávallt öryggisforrit. Til að gæta fyllsta öryggis ættu veiruvarnaforrit, eldveggur/neálmi, njósnavarnabúnaður, tölvupóstsía og  sprettigluggavörn ávallt að vera til staðar.

5. Notaðu netsíu sem hamlar aðgangi barna að óæskilegu efni.

6. Stilltu stýrikerfið og öryggisforrit þannig að þau sæki og setji upp nýjustu uppfærslur sjálrafa.

7. Hafðu tölvuna í opnu rými frekar en lokuðu herbergi.

 



 

FYRIR BÖRN

1. Farðu varlega þegar þér berast viðhengi með tölvupósti eða skrár í spjallforritum eða félagsnetsíðum. Ekki opna neitt slíkt nema þú sért alveg viss um að skráin sé meinlaus.

2. Fáðu alltaf leyfi þess sem á tölvuna áður en þú setur upp ný forrit. 

3. Ekki veita ókunnugum persónulegar upplýsingar á netinu (t.d. nafn, heimilisfang, lykilorð, símanúmer, fæðingardag, kennitölu eða myndir), hvorki í spjalli né á vefsíðum nema spyrja fullorðinn fyrst.

4. Tilboð sem berast í gegnum tölvupóst, spjallforrit eða á netinu eru varhugaverð. Beittu ávallt ýtrustu varúð áður en eihvað slíkt er samþykkt.

5. Hafðu alltaf fullorðinn viðstaddan þegar þú ætlar að hia einhvern sem þú kynnist á netinu í fyrsta skipti.

6. Segðu einhverjum fullorðnum sem þú treystir frá því ef þú sérð eihvað á netinu sem þér líkar ekki.



 

Hér má sækja öryggisboðorð SAFT fyrir börn og foreldra (sem PDF), en sé þeim fylgt eykst öryggi tölvunotenda á heimilinu til mikilla muna. 


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum