Hvernig notum við Netið?
Kynning
Möguleikarnir sem sköpuðust við það að almenningur fór að nýta sér Netið í leik og starfi eru óþrjótandi. Venjulegt fólk hefur því tækifæri til að nýta netið á mjög fjölbreyttan, jákvæðan og skemmtilegan hátt. Það hefur þó sýnt sig að börn og fullorðnir eiga það til að festa við frekar einhæfa notkun á þessum miðli s.s. að festast í leikjum, ákveðnum fréttasíðum eða bara nota tölvupóst. Þetta fer auðvitað af einhverju leiti eftir aldri og áhugasviði einstaklingsins. Það skaðar þó ekki að vita betur hvaða möguleika maður hefur því kannski hefur eitthvað áhugavert farið framhjá manni. Það getur líka verið gott fyrri eina kynslóð að vita um hvað aðrar kynslóðir eru að gera á Netinu og hvað þeim finnst gagnlegt og skemmtilegt.
Markmið
Að nemendur verði meðvitaðir um jákvæða notkun Netsins og kynnist fjölbreyttum möguleikum þess.
Hvar og hvernig?
Þetta verkefni er hægt að vinna inni í hefðbundinni skólastofu eða í tölvustofu.
Fyrir kennarann
Umræðupunktar
Verkefni (4-10. bekkur)
Hvernig notum við netið?