Farsímar - Styttri skilaboð

Kynning
Upplýsingaflæði meðal fólks hefur aukist mikið með tilkomu vefsins og farsíma á undaförnum árum. Áður fyrr voru símskeyti notuð til að koma skrifuðum upplýsingum á framfæri og þá þótti mikilvægt að orða skilaboðin skilmerkilega og hafa þau stutt. Í dag gilda svipaðar reglur þegar notaður er tölvupóstur, spjall á netinu og sms-skilaboð. Skilaboðin þurfa að berast fljótt og vera skiljanleg. En hvernig er þróun upplýsingaflæðisins varðandi þessi stuttu skilaboð með skammstöfunum og táknmyndum og hver setur reglurnar?

Markmið
Markmiðin með þessu verkefni að gera grein fyrir hvernig hægt er að skrifa sama textann á misjöfnu formi og að nemendur verði meðvitaðir um íslenska tungu (og erlenda) og mikilvægi þess að koma frá sér skiljanlegum texta. Mikilvægt er að skammstafanir og táknmyndir séu kunn öllum þeim sem nota netið og farsíma til að forðast misskilning. Nemendur þurfa að gera sér grein fyrir þeim siðferðisþáttum varðandi skilaboð sem fara á milli manna þ.e. að það skiptir ekki máli á hvaða formi við skrifum eða til hverra við skrifum að það eru almennar reglur sem þarf að hafa í huga. Þessar reglur er mikilvægt að kennari fari yfir með nemendum og fái þá til að hugsa málið áður en að verkefninu kemur.

Hvar og hvernig?
Verkefnin eru tvö og henta vel í vinnu nemenda með bekkjarkennara á yngri stigum, og lífsleikni- eða íslenskukennara í eldri bekkjum.

Fyrir kennarann
Umræðupunktar

Verkefni 1 (5.-10. bekkur)
Texti og textategundir:
Fyrir kennarann
Verkefni nemenda
Nemendur fá texta í hendurnar (fer eftir við hvað kennarinn vill tengja verkefnið) og eiga að endurskrifa hann á mismunandi vegu.

Verkefni 2 (5.-10. bekkur)
Orðalisti:
Fyrir kennarann
Verkefni nemenda
Nemendur eiga að útbúa orðabók með öllum þeim skammstöfunum og táknmyndum sem þeir þekkja varðandi skilaboð sem send eru á milli fólks í farsímum, tölvupósti og sem spjall á netinu.

Pdf
Allt verkefnið á pdf-sniði til útprentunar

Til baka

Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum