Eining 1



Eining 2



Eining 3





Um þessi verkefni
Kennsluefnið sem hér birtist er hugsað til þess að styrkja jákvæða og skynsamlega notkun á þeim nýju miðlum sem rutt hafa sér rúms á undanförnum árum og eru farnir að hafa mikil áhrif á samfélagið.

Uppbygging
Rauði þráðurinn í gegnum öll verkefnin er sá, að áður en nemendum er kennd ný tækni eða lögð eru fyrir þá verkefni, fram fari umræða um mikilvægi þess að færnin sé notuð á skynsaman hátt. Í verkefnunum sem finna má hér er áherslan ekki lögð á tæknina sem slíka þ.e. hvernig á að nota þennan og hinn hugbúnaðinn heldur á það hvernig hægt er að vekja nemendur til umhugsunar um hvernig má nota ný lærða færni á sem jákvæðastan og uppbyggilegastan hátt. Lögð er áhersla á þær sígildu reglur sem gilda í samskiptum fólks og þær hugsanlegu hættur sem gætu orðið á vegi þeirra sem fara ekki varlega. Einnig er varpað fram hugmyndum um hvernig hægt er að nota mismunandi miðla í kennslu s.s. tölvupóst, blogg, síma o.fl.

Samþætting

Verkefnin eru ekki bara hugsuð fyrir kennslu í upplýsingamennt heldur tengjast þau fleiri námsgreinum s.s. íslensku, samfélagsfræði, lífsleikni o.fl. Verkefnin eru opin að því leyti að það ætti að vera hægt að vinna þau í mismunandi árgöngum og tengja þau mismunandi námsgreinum.

 

Til útprentunar
Verkefnin er hægt opna á pdf-sniði í prentvænni útgáfu.


Umsjón með gerð verkefna

Björgvin Ívar Guðbrandsson og Dögg Lára Sigurgeirsdóttir. Ábendingar eru vel þegnar.


Gerð námsefnis var styrkt af Pokasjóði

 


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum