Til að börnin fái njóta þess sem best að vafra um Netið höfum við sett saman lista af 10 heilræðum sem við teljum mjög mikilvæg fyrir foreldra að fara eftir.

SAFT kennsluefnið tekur á málum eins og persónulegum upplýsingum, heimildagagnrýni og að hitta ekki ókunnuga. Það er miðað við nemendur í 4. - 6. bekk, en gagnast ekki síður öðrum sem vilja glöggva sig á grundvallaratriðum í öruggri netnotkun.
Kennsluleiðbeiningar

Við höfum sett saman lista með orðskýringum yfir helstu heiti sem tengjast Netinu á ensku. Búið er að þýða orðin eftir bestu getu og einnig er að finna orðskýringar á sumum heitunum.

Við höfum sett saman lista af tenglum sem koma að góðum notum.

Tilkynna hættuleg efni
Til að árangur náist er mikilvægt að tilkynna hættulegt efni á Netinu til réttra yfirvalda. Barnaklám er hægt að tilkynna til Barnaheilla en annað ólöglegt efni er hægt að tilkynna til lögreglunnar.
 



Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum