Til að börnin fái njóta þess sem best að vafra um Netið höfum við sett saman lista af 10 heilræðum sem við teljum mjög mikilvæg fyrir foreldra að fara eftir.
SAFT kennsluefnið
tekur á málum eins og persónulegum upplýsingum, heimildagagnrýni og að
hitta ekki ókunnuga. Það er miðað við nemendur í 4. - 6. bekk, en
gagnast ekki síður öðrum sem vilja glöggva sig á grundvallaratriðum í
öruggri netnotkun.
Kennsluleiðbeiningar
Við
höfum sett saman lista með orðskýringum yfir helstu heiti sem tengjast
Netinu á ensku. Búið er að þýða orðin eftir bestu getu og einnig er að
finna orðskýringar á sumum heitunum.
Til að árangur náist er mikilvægt að tilkynna hættulegt efni á Netinu til réttra yfirvalda. Barnaklám er hægt að tilkynna til Barnaheilla en annað ólöglegt efni er hægt að tilkynna til lögreglunnar.