Foreldraeftirlit í Windows 7

Foreldraeftirlitið sem er byggt inn í Windows 7 er hannað til að létta áhyggjum af foreldrum og gera þeim kleift að stjórna nákvæmlega því sem börn þeirra geta gert á tölvunni. Eftirlitið hjálpar foreldrum að ákveða hvaða leiki börnin geta spilað, hvaða forrit þau geta notað og hvaða vefsetur þau geta heimsótt—og hvenær. Foreldrar geta takmarkað tölvunotkun við tiltekna tíma sólarhringsins og treyst því að Windows 7 framfylgir þessum takmörkunum, jafnvel meðan þeir eru í burtu.

Líttu eftir tölvunotkun barna þinna frá einum skjá

Líttu eftir tölvunotkun barna þinna frá einum skjá.

Foreldraeftirlitsglugginn, hluti af smáforritinu Notendareikningar og fjölskylduöryggi undir Stjórnborðinu, samræmir allar lykilstillingar í Windows 7 foreldraeftirlitinu.

Frá þessum eina stað getur þú skilgreint foreldraeftirlit með tölvunni og forritum og sett rétt mörk á leikjanotkun barnanna, vefskoðun og tölvunotkun yfirleitt. Foreldraeftirlitsglugginn er miðlægur staður þaðan sem þú getur sett eftirlitið á og slökkt á því, lokað á eða leyft tiltekin forrit, leiki eða vefsetur og stýrt öllu sem viðkemur tölvunotkun barna þinna. Fjölskylduöryggishugbúnaður og þjónustuveitur þriðja aðila geta einnig kosið að hafa vörur sínar og þjónustu aðgengilega frá foreldraeftirlitsglugganum í Windows 7. Foreldraeftirlitið er ekki virkt á lénsamtengdum vélum, svo sem í fyrirtækjaumhverfi.

 

Aðgerðaskýrslur

Í foreldraeftirlitsglugganum getur þú skoðað auðlæsilegar aðgerðaskýrslur sem sýna hvernig börnin hafa notað tölvuna. Eftirlit með hegðun barnanna auðveldar þér ekki aðeins að fylgjast með því sem þau sjá, hlusta á og gera, heldur gerir það þér einnig kleift að fínstilla og breyta foreldraeftirlitinu í samræmi við reynsluna. Foreldraeftirlitsteiknið á kerfissvæðinu er alltaf sýnilegt börnunum svo að þau vita að að Foreldraeftirlitsaðgerðin er á.

Tímamörk á tölvunotkun

Tímamörk á tölvunotkun

Með Windows 7 getur þú ákveðið hvenær börnin þín mega eða mega ekki nota tölvuna. Þú færð birta töflu sem sýnir vikudagana og stundir dagsins. Tímamörk sett á tölvunotkun. Sjálfgefna stillingin er að leyfa börnunum að nota tölvuna allar stundir sólarhringsins alla daga vikunnar. Til að takmarka tölvunotkun þeirra smellir þú einfaldlega á þær stundir og daga sem þú vilt loka. Þegar barn nálgast lok leyfilegs tíma fær það áminningu 15 mínútum og aftur 1 mínútu áður en tíminn rennur út. Ef tíminn endar áður en barnið skráir sig út gerir Windows 7 hlé á lotu þess og birtir innskráningarskjá svo að annar notandi geti notað tölvuna. Lota barnsins er áfram virk í bakgrunni svo að næst þegar það skráir sig inn getur það haldið áfram þar sem frá var horfið án þess að tapa neinni vinnu.


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum