Íslenskum Facebook-notendum fer sífellt fjölgandi og eiga sumir mörg þúsund vini á samskiptasíðunni. Sum vináttuböndin eru traustari en önnur og því óþarfi að deila hverju klikki á Facebook með öllum heiminum. Danska upplýsingatæknifyrirtækið Komfo hefur gefið út tíu ráð fyrir notendur Facebook til að vernda einkalíf sitt á síðunni.

 
VERNDAÐU EINKALÍFIÐ Á FACEBOOK
 
Höf: Lilja Katrín Gunnarsdóttir
 
Áður en þú lest þessi ráð ættirðu fyrst að fara í gegnum vinalistann þinn og athuga hve marga af vinum þínum þú þekkir í raun og veru. Ótrúlega margir á Facebook eiga haug af vinum og hafa kannski samskipti við tíu prósent af þeim í besta falli. Því er sniðugt að nýta sér ráðin tíu sem danska upplýsingatæknifyrirtækið Komfo hefur gefið út. Með því að nýta sér ráðin tíu er hægt að takmarka upplýsingaflæði til vissra einstaklinga eða hópa sem þú vilt ekki að viti gjörsamlega allt um þig og þína hagi. Þá er líka hægt að hindra að stórfyrirtæki um allan heim taki upp á því að nota upplýsingar um þig í auglýsingaherferðir án þess að þú fáir krónu fyrir. Ef þú vilt gera Facebook-tilvist þína og þinna nánustu öruggari ættirðu að renna yfir ráðin - þú tapar ekkert á því, bara græðir.
 
 

1. Settu vinina í hópa
Taktu frá eina kvöldstund og skiptu vinum þínum niður í hópa. Þannig getur þú búið til einn hóp fyrir vinnufélaga, einn fyrir fjölskyldu, einn fyrir gamla elskhuga og þar fram eftir götunum. Síðan getur þú ákveðið hvaða hópar hafa aðgang að hvaða upplýsingum á prófílnum þínum. Til að búa til slíka lista klikkar þú á valmöguleikann Vinir (Friends) í bláu Facebook-stikunni efst á upphafssíðunni. 


2. Stjórnaðu aðgangi vinanna
Til að stjórna hvaða Facebook-upplýsingar vissir vinir geta séð klikkar þú á valmöguleikann Stillingar fyrir friðhelgi (Privacy Settings) í bláu Facebook-stikunni efst á upphafssíðunni. Þá koma upp valmöguleikarnir Síðan mín (Profile), Leita (Search), Fréttaveita og veggur (News Feed and Wall) og Viðbætur (Applications). Inni í hverjum þessara möguleika getur þú breytt stillingum fyrir vini og afmarkað upplýsingaflæði frá þér til þeirra. Á þessari síðu getur þú blokkað út suma vini - það er nú samt fullgróft nema viðkomandi brjóti alvarlega af sér í þinn garð.
 

3. Ekki deila myndunum með öllum
Til að stjórna hverjir hafa aðgang að myndunum þínum getur þú klikkað á valmöguleikann Síðan mín (Profile) í bláu Facebook-stikunni efst á upphafssíðunni. Því næst velur þú flipann sem heitir Myndir (Photos) og síðan á Friðhelgi albúms (Album Privacy). Þar getur þú valið hverjir geta skoðað myndirnar sem þú setur inn á Facebook. Ef þú vilt líka stjórna því hverjir sjá myndir vina þinna af þér ferðu sömu leið og sagt er frá í ráði númer 2. Í framhaldinu velur þú valmöguleikann Síðan mín (Profile) og breytir stillingum fyrir Merktar myndir af mér (Photos Tagged of You).
 

4. Verndaðu vegginn þinn
Svo þú getir stjórnað hverjir sjá það sem skrifað er á vegginn þinn ferðu sömu leið og í ráði númer 2. Í framhaldinu velur þú valmöguleikann Síðan mín (Profile) og breytir stillingum fyrir Innlegg á vegg (Wall Posts). Góð hugmynd fyrir þá sem eiga marga vini sem þeir eru í litlu sem engu sambandi við. Þá geta þeir ekki njósnað um þig hvenær sem þeir vilja. Það eru nefnilega lúmskt margir sem stunda það á Facebook.
 

5. Feldu upplýsingar um þig
Ef þú átt fjölmarga vini á Facebook sem þú vilt ekki að viti tölvupóstfangið þitt, símanúmer eða heimilisfang er þetta dýrmætt ráð. Þú getur nefnilega falið þessar upplýsingar fyrir vissum aðilum. Þá ferðu sömu leið og í ráði númer 2. Síðan velur þú valmöguleikann Síðan mín (Profile) og því næst flipann Tengslaupplýsingar (Contact Information). Þar getur þú afmarkað sýnileika þessara persónuupplýsinga eins og þú vilt.
 

6. Sýnileiki í Facebook-leit
Ef þú ferð sömu leið og í ráði 2 enn eina ferðina og klikkar á Leit (Search) getur þú ráðið því hverjir geta fundið þig með hjálp Facebook-leitar. Viltu að vinir vina vina þinna á Facebook geti fundið þig á Facebook eða einhver sem þú hittir einhvern tímann á bar og fékkst ekki frið fyrir? Notaðu þá þetta ráð - þá þarftu ekki að fá valkvíða yfir því hvort þú átt að hafna eða samþykkja vinabeiðnir frá fólki sem þú vilt ekki vera vinur en vilt ekki vera það ókurteis að hafna því.
 

7. Sýnileiki í Google-leit
Í sama valmöguleika og í ráði 6 getur þú breytt stillingum fyrir opinbera leit. Þannig getur þú forðast það að nafnið þitt og Facebook-síða poppi upp í leitarvélum eins og Google.
 

8. Ekki auglýsa einkalífið
Í þessu ráði er líka farin sama leið og í ráði 2 nema þú klikkar á Fréttaveita og veggur (News Feed and Wall) til tilbreytingar. Þar inni er flipi sem heitir Aðgerðir innan Facebook (Actions Within Facebook) sem er ansi góður flipi. Þar getur þú valið hvaða aðgerðir sem þú framkvæmir eru sýnilegar vinum þínum þegar þeir skrá sig inn á Facebook. Sumu vill maður nefnilega bara halda fyrir sig. Til dæmis alls kyns virkni í hinum ýmsu stefnumótaþjónustum sem finnast á Facebook - algjör óþarfi að afi og amma geti séð þá sem þú ert skotin/n í fyrr en þú býður þeim heim í kaffi.
 

9. Auglýsingabann
Á Facebook er hægt að vera aðdáandi alls milli himins og jarðar - allt frá hreins lofts og nudds til þekktra tónlistarmanna og fínna veitingastaða. Þegar þú vafrar á Facebook eru oft auglýsingar hægra megin þar sem ýmsar vörur og þjónusta eru kynnt. Þá sérðu stundum að vinir þínir eru aðdáendur þessarar þjónustu. Ef þú ferð sömu leið og í ráði 8 nema klikkar á flipann Facebook auglýsingar (Facebook Ads) getur þú valið hvort þú viljir taka þátt í slíkum auglýsingum og láta vini þína vita að þú nýtir þér þjónustuna eða vöruna sem verið er að auglýsa.
 

10. Passaðu þig á fyrirtækjunum
Þegar þú segir já við að taka skemmtilegt próf samþykkir þú svokallaða viðbót, application á ensku. Þannig gefur þú fyrirtæki sjálfkrafa leyfi til að sjá upplýsingar um þig og vini þína. Þetta geturðu svo sannarlega takmarkað enda óvíst hversu æskilegt það er að eitthvert fyrirtæki í Kína eða Noregi fari að nýta sér upplýsingar um þig, kannski í rannsóknar- eða auglýsingaskyni, og græði á þér án þess að þú vitir það. Veldu valmöguleikann Stillingar fyrir viðbætur (Application settings) í bláu Facebook-stikunni efst á síðunni. Þar færðu yfirlit yfir allar viðbætur sem þú hefur samþykkt og getur breytt aðgangi fyrirtækja að upplýsingunum þínum eða einfaldlega eytt viðbótinni sem þú notar væntanlega afar sjaldan. Þannig getur þú samþykkt viðbót, tekið skemmtilegt próf, fengið niðurstöðurnar og birt á síðunni þinni og eytt síðan viðbótinni.


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum