NÝTT NÁMSEFNI FYRIR MIÐSTIG: ÁBYRG OG JÁKVÆÐ NOTKUN NETSINS OG ANNARRA NÝMIÐLA
Nýverið veitti mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, viðtöku nýrri SAFT lestrarbók, Rusleyjan eftir Þórarin Leifsson, og var viðstödd frumsýningu spunaleikritsins Heimkoman í Háteigsskóla. Bókin er ætluð miðstigi grunnskóla og mun SAFT dreifa henni til allra skóla landsins skólaveturinn 2011-2012. Bókin fjallar um ábyrga og jákvæða notkun netsins og annarra nýmiðla, rafrænt einelti og mikilvægi endurnýtingar og endurvinnslu. Henni fylgja handrit og framkvæmdarlýsing að jafningjafræðslu og spunaleikverkinu Heimkoman eftir Rannveigu Þorkelsdóttur leiklistarkennara. Leikritið er ætlað til uppsetningar af leiklistarhópum skóla og er spuninn kjörið tæki til að taka á þeim álitamálum sem bókin fjallar um og hentar einnig vel til að þjálfa börn í tjáningu og að takast á við lausn eineltismála. Bæði lestrarbók og leikriti verður dreift án endurgjalds.
Verkefnið er unnið í samstarfi SAFT, Heimilis og skóla, Háteigsskóla, Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, Embættis landlæknis (áður Lýðheilsustöð), Námsgagnastofnunar, Grænnar framtíðar og Félags um leiklist í skólastarfi. Verkefnið hefur hlotið styrk úr: Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytis, Samfélagssjóði Landsvirkjunar, Góða hirðinum/Sorpu og frá Símanum.
Vefsíðan www.rusleyjan.is var opnuð í tengslum við verkefnið, en þar má finna upplýsingar um verkefnið í heild sinni.
Ungmennaráð SAFT mun ferðast um landið í tengslum við verkefnið og vera með jafningjafræðslu samhliða uppsetningu leikritsins Heimkoman. Þá geta skólar, nemendur og skólafélög safnað biluðum og gömlum smáraftækjum (GSM símum, fartölvum, stafrænum myndavélum, stafrænum upptökuvélum, netlyklum og MP3 spilurum) í fjáröflunarskyni. Safna má til einstakra verkefna svo sem fyrir skólann, skólaferðalög eða góðgerðarfélög. Græn framtíð mun greiða fyrir þann búnað sem safnast, en hann verður fluttur til endurnýtingar hjá endurnýtingarfyrirtækjum í Evrópu. Þar mun búnaðurinn öðlast nýtt líf og verður meðal annars seldur aftur til þróunarríkja.
(PDF útgáfur af efninu er hægt að hala niður með því að smella á myndirnar)
Heimili og skóli og SAFT hafa látið útbúa lestrarbækur um netið sem hefur verið send sem gjöf á alla leik- og grunnskóla landsins. Bækurnar eru ætlaðar börnum í fyrsta, öðrum og þriðja bekk grunnskóla og í elstu árgöngum leikskóla.
Höfundur bókanna er Þórarinn Leifsson sem vann texta og myndir í samvinnu við Námsgagnastofnun, SAFT – Samfélag, fjölskyldu og tækni og Heimili og skóla – Landssamtök foreldra. Reykjavíkurborg og Mennta- og menningarmálaráðuneytið styrktu útgáfu lestrarbókanna.
Lestrarbækurnar eru þrjár og eru aðallega ætlaðar fyrir börn á aldrinum 5 – 8 ára.
Bókin Hrekklaus fer á netið er ætluð börnum í efsta árgangi leikskóla og í fyrsta bekk grunnskóla.
Bókin Leikurinn er ætluð börnum í öðrum bekk grunnskóla.
Bókin Afmælisveislan fyrir börn í þriðja bekk grunnskóla.
Tilgangur með lestrarbókunum er að kynna netið fyrir yngstu lestrarhópunum. Jafnframt er bókunum ætlað að vera leið fyrir foreldra og starfsfólk í leik- og grunnskólum til að fræða börn á einfaldan hátt um jákvæða og örugga netnotkun. Aftast í hverri bók eru leiðbeiningar fyrir foreldra/kennara um atriði sem varða netöryggi barna og hvernig nálgast megi umræðuna við börn um netið og góða netsiði.
Það er von okkar sem stöndum að útgáfu þessara bóka að lestur þeirra verði börnum, foreldrum og starfsfólki leik- og grunnskóla bæði til gagns og gamans.
(PDF útgáfur af efninu er hægt að hala niður með því að smella á myndirnar)
Hér má finna handrit og verkefnalýsingu á jafningjafræðsluleikritinu „Þú ert það sem þú gerir á netinu“ eftir Elítuna og Rannveigu Þorkelsdóttur.
(PDF útgáfur af efninu er hægt að hala niður með því að smella á myndirnar)