Námsefni

BÆKUR OG ANNAÐ NÁMSEFNI

Rusleyjan, lestrarbók eftir Þórarin Leifsson er nýtt fræðsluefni fyrir miðstig grunnskóla, sem SAFT dreifir til allra skóla landsins í vetur. Bókin fjallar um ábyrga og jákvæða notkun netsins og annarra nýmiðla, með sérstaka áherslu á rafrænt einelti, og mikilvægi endurnýtingar og endurvinnslu. Henni fylgja handrit og framkvæmdarlýsing á jafningjafræðslu og spunaleikverki sem nefnist Heimkoman og er eftir Rannveigu Þorkelsdóttur leiklistarkennara. Leikritið er ætlað til uppsetningar af leiklistarhópum  skóla. Bæði lestrarbók og leikriti er dreift án endurgjalds.

Verkefnið er unnið í samstarfi SAFT, Heimilis og skóla, Háteigsskóla, Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, Embættis landlæknis, Námsgagnastofnunar, Grænnar framtíðar og Félags um leiklist í skólastarfi. Verkefnið hefur hlotið styrk úr Sprotasjóði mennta- og menningarmála-ráðuneytisins, Samfélagssjóði Landsvirkjunar, frá Góða hirðinum/Sorpu, Reykjarvíkurborg og Símanum.

Vefsíðan www.rusleyjan.is hefur verið opnuð í tengslum við verkefnið, en þar má finna upplýsingar um verkefnið í heild sinni.

Í tengslum við verkefnið mun ungmennaráð SAFT ferðast um landið og vera með jafningjafræðslu samhliða uppsetningu leikritsins Heimkoman.  Þá geta skólar, nemendur og skólafélög safnað ónýtum og gömlum smáraftækjum (GSM símum, fartölvum, stafrænum myndavélum, stafrænum upptökuvélum, netlyklum og MP3 spilurum) í fjáröflunarskyni. Skólafélög eða einstakir árgangar geta safnað til einstakra verkefna, svo sem fyrir skólann sinn, skólaferðalög eða fyrir góðgerðarfélög.  Græn framtíð mun greiða fyrir þann búnað sem safnast, en hann verður fluttur til endurnýtingar hjá endurnýtingarfyrirtækjum í Evrópu. Þar mun búnaðurinn öðlast nýtt líf og verður meðal annars seldur aftur til þróunar-ríkja.

SAFT og samstarfsaðilar vænta góðrar samvinnu við grunnskóla landsins og vonast til þess að sem flestir lesi bókina, setji upp spunaleikritið samhliða jafningjafræðslu og taki þátt í söfnuninni.

Þeir skólar sem hafa áhuga á að fá SAFT í heimsókn samhliða uppsetningu spunaleikverks geta haft samband með því að senda tölvupóst á saft@saft.is

———

Fjölskyldugaman: Að ná tökum á vefnum

 

Efnið er á sviði upplýsingatækni og er ætlað 5.-7. bekk grunnskóla

Efnið er upphaflega hannað af Insafe, sem er netverk þeirra Evrópuþjóða sem starfa að netöryggisáætlun ESB. Efnið er þýtt, staðlað og heimfært af SAFT. Efnið er hugsað fyrir fimmta til sjöunda bekk grunnskóla. Vinnubók sem börn vinna með hjálp foreldra og handbók fyrir foreldra til hliðsjónar. Vinnubókin miðar að því að uppfræða börn um örugga netnotkun. Í vinnubókinni eru yfir 50 ábendingar um örugga netnotkun og æfingar til að kenna börnum að nota netið á jákvæðan og uppbyggilegan hátt.

1. Tvær bækur, fjölskyldugaman og foreldrahandbók.
2. Gullnar reglur, listi til að fylla út
3. Fjölskylduskírteini
4. Límmiðar
5. 12 kort til að klippa út

Bækurnar eru báðar með litvísa til að greina á milli fjögurra lykilþema sem eru: Öryggi, samskipti, skemmtun og niðurhal og rafrænt einelti.
Foreldrahandbókin er hugsuð sem upplýsingagrunnur fyrir bæklinginn Fjölskyldugaman.
Fjölskyldugaman er fyrir foreldra og börn að nota saman. Þar er fjallað um lykilþemun fjögur með sögu af tveimur börnum, Alex og Önnu, foreldrum þeirra og tölvusnillingnum Helenu. Hver kafli samanstendur af mismunandi þáttum, s.s. verkefnum á netinu, könnunum, heilræðum og gagnlegum tenglum.

Markhópur verkefnis er öll grunnskólabörn í 5.-7. bekk grunnskóla. Námsefnið hefur sömu þýðingu fyrir öll þessi börn, óháð kyni eða búsetu, enda aðgengi að neti og netnotkun nokkuð jöfn milli kynja og búsetu. Jafnt aðgengi markhóps er að öllum líkindum tryggt þar sem rætt hefur verið um að Námsgagnastofnun annist dreifingu efnisins.

————

Heimili og skóli og SAFT hafa látið útbúa lestrarbækur um netið sem send hefur verið sem gjöf á alla leik- og grunnskóla landsins. Bækurnar eru ætlaðar börnum í fyrsta, öðrum og þriðja bekk grunnskóla og í elstu árgöngum leikskóla. Höfundur bókanna er Þórarinn Leifsson sem vann texta og myndir í samvinnu við Námsgagnastofnun, SAFT – Samfélag, fjölskyldu og tækni og Heimili og skóla – Landssamtök foreldra. Reykjavíkurborg og Mennta- og menningarmálaráðuneytið styrktu útgáfu lestrarbókanna.
Lestrarbækurnar eru þrjár og eru aðallega ætlaðar fyrir börn á aldrinum 5 – 8 ára.

Hrekklaus fer á netið er ætluð börnum í efsta árgangi leikskóla og í fyrsta bekk grunnskóla. Bókin Leikurinn er ætluð börnum í öðrum bekk grunnskóla og Afmælisveislan fyrir börn í þriðja bekk grunnskóla.

  

Tilgangur með lestrarbókunum er að kynna netið fyrir yngstu lestrarhópunum. Jafnframt er bókunum ætlað að vera leið fyrir foreldra og starfsfólk í leik- og grunnskólum til að fræða börn á einfaldan hátt um jákvæða og örugga netnotkun. Aftast í hverri bók eru leiðbeiningar fyrir foreldra/kennara um atriði sem varða netöryggi barna og hvernig nálgast megi umræðuna við börn um netið og góða netsiði.
Það er von okkar sem stöndum að útgáfu þessara bóka að lestur þeirra verði börnum, foreldrum og starfsfólki leik- og grunnskóla bæði til gagns og gamans.

—————————–

PAXEL123

PAXEL123.com vefurinn er ætlaður nemendum á leik- og grunnskólaaldri sem eru að stíga sín fyrstu skref í því að vinna með orð og hugtök tengd móðurmáli og stærðfræði.

Markmiðið með PAXEL123.com er að örva læsi í stærðfræði og móðurmáli með örvandi tölvuleikjum.

Leikirnir á PAXEL123.com örva formskynjun, talnaskilning og rökhugsun auk þess sem þar er að finna rímleiki og stafarugl. Leikirnir henta einnig sem ítarefni við sérkennslu þ.m.t. að vinna með börnum af erlendum uppruna.

Hugmyndin að þessum leikjavef er sprottinn af vinnu Önnu Margrétar Ólafsdóttur leikskólastjóra í Nóaborg í Reykjavík, en leikskólinn hefur í rúm tíu ár haft stærðfræði og ritmál sem leiðarljós í vinnu með börnunum í leikskólanum. Mikið af leikefni barnanna sem tengist þessum leiðarljósum er heimagert s.s. ýmis spil og leikir. Það sem hefur verið vinsælast hjá börnunum þennan tíma hefur nú verið útfært í tölvuleiki á PAXEL123 auk þess sem nýir leikir bætast í hópinn.