Heimili og skóli og SAFT, vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi, bjóða upp á fjölda fyrirlestra og námskeið um netið og nýmiðla fyrir nemendur, foreldrafélög, skólaráð, kennara og félagasamtök.
• Internetið: Jákvæð og örugg notkun barna og unglinga
Markhópur: Nemendur, foreldrafélög, skólaráð, kennarar og skólastjórnendur
Efnistök: Internetið er frábær upplýsingaveita og tæki til samskipta en þar felast einnig ýmsar hættur sem mikilvægt er fyrir foreldra að þekkja og gera sér grein fyrir. Til að foreldrar geti talað við börnin sín og leiðbeint þeim um öryggi og góða hegðun þurfa þeir að þekka það umhverfi sem þeir eru í dags daglega. Leiðbeiningar um “umferðarreglur” á netinu eru því orðinn einskonar hluti af uppeldishlutverkinu. Fjallað er um netið og nýmiðla og mikilvægi þeirra í lífi barna og unglinga. Rætt er m.a. um a) helstu notkunarleiðir og venjur barna og unglinga, b) hvað nauðsynlegt er að hafa í huga til að netnotkun verði örugg og ánægjuleg, c) hvernig foreldrar og kennarar geta rætt um jákvæða og örugga netnotkun við börn og unglinga, og d) sýnikennsla á nokkrum af þeim "verkfæra" sem ungt fólk notar.
• Internetið: Ábyrg, jákvæð og örugg netnotkun
Markhópur: Nemendur
Efnistök: Á fyrirlestrinum er m.a. farið yfir siðferði á netinu, rafrænt einelti, netboðorðin, félagsnetsíður, friðhelgi einkalífsins, netvini, nettælingu og ræða aðeins um kynslóðabilið. Við munum leggja áherslu á almenn samskipti á netinu, að allt sem þú gerir á netinu endurspeglar hver þú ert og notum bæði glærur og myndskeið til að byggja upp lifandi og gagnvirkt erindi.
• Bara 5 mínútur í viðbót
Steindór Gunnar Steindórsson sýni heimildarmynd sína „Bara 5 mínútur í viðbót“ og fjallar um tölvuleikjafíkn ungfólks. Í myndinni er talað við sérfræðinga, s.s. sálfræðing, tölvufræðing, yfirlögregluþjón, sem og þrjá unga drengi á mismunandi aldri sem allir eiga það sameiginlegt að vera háðir tölvuleikjum. Stærsti áhættuhópur tölvuleikjafíknar eru ungir drengir á aldrinum 15 til 25 ára. Myndin sýnir hvernig fíknin hefur áhrif á þeirra nánasta umhverfi, félagslegan þroska og almennt líf. Undanfarið hefur mikið verið rætt um „tölvuleikjafíkn“ í sjónvarpi, blöðum og samfélaginu öllu. Þetta er vaxandi vandamál sem vert er að fjalla um og vekja athygli á. Tölvuleikjafíkn er orðið að samfélagsmeini sem kalla má falið eða þögult vandamál. Fíknin leynist inná heimilum fólks og getur orðið svo alvarleg að það kemur til kasta lögreglu þegar taka þarf á vandamálinu. Þess vegna er það nauðsynlegt að til sé fræðandi heimildarmynd þar sem rætt er bæði við sérfræðinga og notendur tölvuleikja til að upplýsa fólk um þessa fíkn. Sýningu myndarinnar er fylgt eftir með umræðum.
• Rafrænt einelti er ofbeldi, ofbeldi er glæpur
Við bjóðum upp á tvenns konar fyrirlestur fyrir skóla sem er ætlað kennurum, foreldrum og nemendum. Annars vegar er 30 mínútna fyrirlestur þar sem teknar eru fyrir í grófum dráttum helstu boðleiðir og tegundir rafræns einelti. Einnig verða niðurstöður rannsóknar okkar kynntar þar sem áhersla er lögð á orðræðu og forvarnir til barna, skóla og foreldra. Að loknum fyrirlestri er boðið upp á spurningar og umræður. Hins vegar er 60 mínútna fyrirlestur þar sem farið verður dýpra í boðleiðir og tegundir rafræns eineltis. Fjallað er um þolendur, gerandur og afleiðingar rafræns eineltis. Kynntar verðar niðurstöður rannsóknar okkar þar sem farið er inn á orðræðu um rafrænt einelti, mikilvægi þess að passað sé upp á hvernig talað er um atburðinn. Forvarnir skipa mikilvægan sess í þessum fyrirlestri og einnig það hvernig allir verða að vera meðvitaðir um hvað er að gerast í kringum börnin okkar og okkur sjálf, eflinga vitundarvakningu. Að loknum fyrirlestri er boðið upp á spurningar og umræður. Einnig bjóðum við upp á sérstaka fræðslu um rafrænt einelti sem er frekar hugsað sem aðeins fræðsla fyrir nemendur. Þar munum við tala um hvað rafrænt einelti er, hætturnar á bak við það og efla vitundarvakningu nemendanna. Í þessum fyrirlestri er einnig farið stuttlega inn á boðleiðir, tegundir og afleiðingar rafræns eineltis útskýrðar. Ef einhverjar aðrar óskir koma upp varðandi efnistök á rafrænu einelti er sjálfsagt að verða við þeirri bón. Fyrirlesarar eru Heiða Kristín Harðardóttir og Kristrún Birgisdóttir
1. Fyrirlestur - c.a. 60 min - 30 þús fyrir félagsmenn Heimili og skóli / 40 þús fyrir aðra.
2. Fyrirlestur + klípusaga + umræður - c.a. 90 min - 35 þús fyrir félagsmenn Heimili og skóli / 45 þús fyrir aðra.
3. Fyrirlestur + klípusaga + tölvur/kennsla + umræður - c.a. 120 min - 40 þús fyrir félagsmenn Heimili og skóli / 50 þús fyrir aðra.
4. Fyrirlestur + tölvur/kennsla + umræður - c.a. 90 min - 30 þús fyrir félagsmenn Heimili og skóli / 40 þús fyrir aðra.