Netið í símanum hækkar

 

Netið í símanum hækkar

09:00 › 26. JANÚAR 2012
Það getur verið dýrt að fylgjast ekki með netnotkun í síma.

Það getur verið dýrt að fylgjast ekki með netnotkun í síma.

Hækkun á gjaldskrá fyrir gagnamagn hjá Vodafone og Símanum er væntanleg og mun hún hafa mest á áhrif á þá sem fara ekki daglega á netið í snjallsíma sínum. Þetta kemur fram á simon.is en þar segir að nokkuð stór hópur fólks eigi snjallsíma en noti þá ekki sem slíka og fari ekki á netið í þeim.

Það sé þó ekki öllum ljóst að oft og tíðum tengist síminn sjálfur netinu og nær í upplýsingar án þess að eigandinn verði þess var. Slík tenging við netið hefur fram til þessa kostað 25 krónur daglega sem gerir um það bil 750 krónur á mánuði. Á vef simon.is segir að nú séu yfirvofandi hækkanir hjá Vodafone en dagpakki mun hækka um 65 krónur í 95 krónur og komst DV að því að slík hækkun er einnig yfirvofandi hjá Símanum.

Simon.is bendir á að fyrir þá sem fara á netið daglega og kaupa gagnapakka verði breytingin lítil sem engin. Þetta verði hins vegar mikil hækkun fyrir þá sem kaupa ekki gagnapakka en eiga síma sem tengist netinu daglega. Hjá þeim muni verðið fara úr 750 krónum í 2.700 krónur á mánuði. Þeir sem tilheyra þessum hópi eru hvattir til að vera á varðbergi vegna þessa og hafa samband við símafyrirtæki sitt. Þar fást upplýsingar um hvað þeir borga fyrir netnotkun en þjónustufulltrúi mun geta upplýst viðskiptavininn um hvort síminn noti reglulega gagnamagn, hversu mikið, hversu oft og hvað það kosti viðskiptavininn.


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum