Föstudaginn 29. október 2010 verður haldin árleg ráðstefna 3f, félags um upplýsingatækni og menntun, í samstarfi við Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs á Ásbrú. Titill ráðstefnunnar í ár er „FRAMTÍÐIN ER NÚNA – TÆKNI FYRIR ALLA“ og verða þar kynntir ýmsir möguleikar og lausnir sem eru í boði í upplýsingatækni og hvernig þeir koma til með að snerta bæði nemendur og kennara.
Markmiðið með ráðstefnunni er að kynna fyrir kennurum á öllum skólastigum það helsta sem er að gerast í upplýsingatækni og kennslu. Óhætt er að fullyrða að mikil þróun hefur átt sér stað og margvísleg tækni til sem nýtist hinum almenna kennara.
Fyrirkomulag ráðstefnunnar verður á þann veg að fyrirtækjum, og öðrum aðilum sem sérhæfa sig á þessu sviði, verður boðið að koma og kynna vöru sína og þjónustu. Lögð er áhersla á að gefa kennurum tækifæri til þess að prófa hluti, ræða um þá og skiptast á hugmyndum. Reiknað er með að fjöldi þátttakenda verði að bilinu 150–200.
Allar frekari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á vefnum:
Skráning fer fram hér:
https://spreadsheets1.google.com/viewform?hl=en&formkey=dFd0TFRCRXhDc09MVjN3aUNQNjhKSFE6MQ#gid=0
Vinsamlega athugið að framboð sýningarsvæðis er takmarkað og verða skráningar afgreiddar samkvæmt reglunni „fyrstir koma, fyrstir fá”.