Nýjar leiðir fyrir fatlaða með netinu

 

 Facebook

Facebook Reuters

 
Tækni & vísindi | AFP | 5.9.2010 | 08:01

Nýjar leiðir fyrir fatlaða með netinu

Netið hefur reynst mörgum sem eiga við fötlun að stríða vel. Í frétt AFP kemur fram að Sally Harrison, sem hefur átt við andleg veikindi að stríða, hafi eignast nýtt líf á samskiptavefnum Facebook. 

AFP tekur einnig dæmi af blindum manni sem eru allir vegir færir með snertiskjá og annarri tækni sem boðið er upp á í dag.

 Harrison hefur í mörg ár ekki getað átt eðlileg samskipti með annað fólk en eftir að hún kynntist Facebook þá hafi hún endurnýjað tengsl við fólk sem hún þekkti áður.

Kemur fram í úttekt AFP að svo virðist sem samskiptavefir eins og Facebook geti gefið fólki möguleika á að mynda varnarskjöld í kringum sig. Það geti valið og hafnað því hverjir fái að sjá ákveðnar upplýsingar um það. Með þessu er hægt að koma í veg fyrir að fólk gefi sér ákveðnar skoðanir fyrirfram um viðkomandi.  


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum