Fréttaskýring: Tölvuský við sjóndeildarhringinn

 

Klaus Holse Andersen.

Klaus Holse Andersen. mbl.is/Jakob Fannar

 
Tækni & vísindi | Morgunblaðið | 28.8.2010 | 11:30

Fréttaskýring: Tölvuský við sjóndeildarhringinn

iðtal Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is

„Örar breytingar á rekstrarumhverfi fyrirtækja geta virst ógnvekjandi, en samhliða tækniframþróun geta slíkar breytingar boðið upp á mikil tækifæri,“ segir Klaus Holse Andersen, yfirmaður Microsoft í Vestur-Evrópu. Hann segir þróunina nú vera frá hinni gamalgrónu hugmynd um tölvu á hverju borði yfir í það sem kallað hefur verið „tölvuský“. Sú þróun felur það í sér að vinnsla færist í auknum mæli „út úr húsi“ og í sérhæfð gagnaver, sem jafnvel geta verið rekin af þriðja aðila.

 

 

Mikil kostnaðarhagkvæmni

Með því að notfæra sér tölvuský geta fyrirtæki keypt aðgang að nákvæmlega þeirri þjónustu sem þau þurfa, í stað þess að koma sér upp eigin vél- og hugbúnaði, með þeim kostnaði sem því fylgir. Kostnaður helst þannig betur í hendur við eiginlega notkun, og hagkvæmni næst í samræmi við það. „Segjum sem svo að þú rekir 50 manna fyrirtæki, og viljir að starfsmenn hafi eigið netfang. Í stað þess að kaupa póstþjón og tilheyrandi hugbúnað geturðu keypt afnot af 50 pósthólfum og greitt mánaðargjald fyrir,“ segir Andersen. Aðspurður hvort líkja megi slíkri þjónustu við rafmagnsnotkun fyrirtækis játar hann því. Aðeins sé greitt fyrir notkun.

 

Einn helstu kosta þess að nota þjónustu í skýi er sá að hægt er að nálgast hana hvaðan sem er. Hún er ekki endilega bundin við vafra, svo dæmi sé tekið. Jafnframt þarf notandi þjónustunnar ekki að hafa áhyggjur af umfangi starfsemi sinnar, til dæmis í þeim tilfellum sem hún vex hratt. „Sá aðili sem heldur utan um skýið er líklegur til að selja þjónustu sína til þúsunda viðskiptavina, og hann nær þannig stærðarhagkvæmni í umsýslu vélbúnaðarins. Hagræðið sem hlýst af því skilar sér í lægri kostnaði fyrir notandann,“ segir Andersen. Hann tekur dæmi: „Ef þú horfir til þjónustunnar sem við bjóðum, þá gæti kostnaður fyrirtækis við það að kaupa aðgang að tölvupósti, samstarfshugbúnaði, samskiptaþjónustu og myndsímaþjónustu verið um 10 dalir á starfsmann á mánuði. Viðskiptavinir Microsoft í Evrópu hafa látið gera úttekt á mögulegum sparnaði við flutning tölvuvinnslu sinnar í ský, og niðurstaðan varð sú að jafnvel best reknu fyrirtækin, sem reka sín eigin tölvukerfi, geta ekki keppt við þetta verð. Þeir sem eru síður hagkvæmir borga allt að fjórum sinnum þetta á mánuði í kostnað,“ segir Andersen

 

 

Hagsmunir ríkis og einkaaðila

Andersen þekkir vel til í íslenska tölvugeiranum, en hann átti meðal annars þátt í því að koma skrifstofu Microsoft hér á landi á fót og hefur komið oft á síðustu árum. Hann segir stöðu Íslands í tölvutækni sterka miðað við aðrar þjóðir, og tækifæri séu fyrir hendi til að styrkja stöðuna enn frekar. Tilkoma tölvuskýja sé til dæmis eitt þeirra. Tækifærin séu hins vegar ekki einungis bundin við hugbúnaðargeirann. Hið opinbera getur tekið virkan þátt í þessari sókn, en Andersen fundaði ásamt forsprökkum Microsoft hér á landi með stjórnvöldum fyrir helgi.

 

Hann sér fyrir sér að hið opinbera geti komið upp nokkurs konar „ríkisskýi“ og endurhannað þannig tæknilega innviði stjórnsýslunnar með nýjustu og hagkvæmustu tækni. „Við þetta yrðu til tækifæri fyrir þá sem starfa við hugbúnaðarþróun hér á landi. Þeir gætu þróað lausnir fyrir hið opinbera, sem notaðar yrðu í þessu skýi. Þær lausnir mætti síðan flytja út, eftir að þær hafa verið prufukeyrðar hér á landi,“ segir hann. „Þannig fara hagsmunir hins opinbera og einkaaðila saman, og ýtt er undir nýsköpun í hugbúnaðargeiranum.“

 

Þekktasta tölvuskýið

Andersen tekur samskiptavefinn Facebook sem dæmi þegar hann er beðinn að skilgreina hvað tölvuský er. Hægt er að tengjast Facebook á marga vegu, aðgengið er ekki bundið við eina gerð vélbúnaðar eða ákveðinn hugbúnað.

 

Þannig getur notandinn tengst vefnum í gegnum vafra, eins og algengast er, eða í gegnum hvers konar hugbúnað sem býður upp á tengimöguleika. Ennfremur er notandinn ekki bundinn við tölvu, heldur getur hann til dæmis notast við síma eða leikjatölvu.

Hugbúnaðurinn sem drífur vefinn áfram keyrir í gagnaveri, skýi, og breytingarnar sem gerðar eru á honum kalla ekki á hug- eða vélbúnaðaruppfærslur þeirra sem honum tengjast. Breytingarnar eru „úr augsýn“ og hafa ekki áhrif á notandann, nema að því leyti sem virkni vefjarins breytist. Þetta má síðan, í grófum dráttum, heimfæra upp á aðra skýjaþjónustu.


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum