Bandaríska tæknifyrirtækið Cisco hefur gert yfirtökutilboð í netsamskiptafyrirtækið Skype, samkvæmt tæknibloggvefnum TechCrunch. Vísar bloggvefurinn í öruggar heimildir en ekki hefur verið tilkynnt um tilboðið opinberlega. Skype er að fara í hlutafjárútboð á næstunni.
Samkvæmt TechCrunch á Google einnig að hafa sýnt því áhuga að eignast Skype en ekkert yfirtökutilboð hefur borist úr þeirra herbúðum.
Í byrjun ágúst var greint frá því að Skype yrði skráð á Nasdaq hlutabréfamarkaðinn í New York að afloknu útboði.
Uppboðsvefurinn eBay seldi í fyrra meirihlutann í Skype til hóps fjárfesta á tvo milljarða Bandaríkjadala. Meðal kaupanda eru tveir stofnendur Skype. Miðað við söluna þá var Skype metið á 2,75 milljarða Bandaríkjadala.