Alls eru 52.320 Íslendingar á aldrinum 20-29 ára á Facebook, en það gerir 111,8% allra Íslendinga á þessum aldri, samkvæmt tölum frá Facebook.
Hjörtur Smárason markaðsráðgjafi sem sérhæfir sig í samfélagsmiðlum segir frá þessu á bloggi sínuMarketing Safari.
Hjörtur segir ástæðuna fyrir því að fleiri Íslendingar á þessum aldri séu á Facebook en í landinu sjálfu sé margþætt. Íslendingar búsettir erlendis skýri einhvern hluta af því, en einnig sé mikið um að krakkar yngri en 12 ára ljúgi til um aldur. Einnig séu sumir með fleiri en eina síðu.