Á vefsíðunni Vötnum og veiði er sagt frá því að veiðiþjófar hafi óvart komið upp um sig eftir að frétt um mokveiði af bleikju í Norðurá í Skagafirði var birt á vefnum. Fréttinni fylgdu myndir og fljótlega eftir að fréttin birtist bárust ritstjóra síðunnar ábendingar um að myndin væri tekin á verndarsvæði sem er lokað fyrir stangveiði. Svæðið sem um ræðir er í Norðurá, fyrir ofan Valagilsá rétt við Öxnadalsheiðina. Haraldur Smári Haraldsson veiðieftirlitsmaður í Skagafirði segir að þó nokkuð hafi verið um veiðiþjófnað í Skagafirði í sumar og sérstaklega á þessu svæði.
Haraldur Smári segir að í einhverjum tilvikum hafi hann haft samband við lögreglu vegna veiðiþjófa í sumar en í flestum tilfellum hafi þjófnaðurinn ekki aðrar afleiðingar en þær að viðkomandi er vísað frá svæðinu. Hann segir að til þess að sporna við veiðiþjófnaði þurfi að auka eftirlit og að alltof létt sé tekið á veiðiþjófnaði.
frettir@ruv.is