Fjöldi virkra .is-léna náði 30.000 í lok síðustu viku og var í dag 30.027 lén. Samkvæmt upplýsingum frá Internet á Íslandi hefur fjöldi .is-léna vaxið jafnt og þétt undanfarin ár, en vöxturinn tók kipp í nóvember 2008 er stofngjald léna var fellt niður og fyrsta árgjaldið lækkaði um 36%.
Fyrirtækið segir, að verð léna hafi lækkað um tæp 50% að
raungildi þar sem árgjald .is léna hafi staðið í stað í 10 ár. Þetta skýri meðal annars að lénafjöldinn hafi tvöfaldast síðustu þrjú ár.
Lénafjöldinn hækkar og lækkar með nýskráningum og afskráningum og er því mjög breytilegur. Samkvæmt vefsíðunni isnic.is voru virk lén 29.996 talsins klukkan 17 í dag.