HÆTT VIÐ ÞRÓUN GOOGLE WAVE

 

HÆTT VIÐ ÞRÓUN GOOGLE WAVE

TÆKNI 10:36 › 5. ÁGÚST 2010
 

Google ætlar að hætta þróun á verkefninu Google Wave. Með verkefninu átti að sameina tölvupóst, spjallforrit og samfélagssíður. Þetta átti að gera fólki kleift að vinna betur saman, hvort sem var á vinnustað eða í vinahópnum.

Prufuútgáfa (BETA) var opnuð fyrir ári síðan þar sem almennir notendur gátu skráð sig. Áður en það gerðist var völdum notendum Google boðið að taka þátt í að prufa verkefnið. Þegar það var seldust Google Wave boð fyrir allt að sjötíu dollara á eBay.

Google hefur hinsvegar sagt að það gangi ekki nógu vel að fá fólk til að nota Wave og að það sé ekki ástæða til að halda áfram með verkefnið. Kvartanir hafa borist frá notendum að of flókið sé að nota Wave. Meira að segja þeir sem unnu að verkefninu viðurkenna að þeim finnist ekki þægilegt að nota vefinn.

Aðalsteinn Kjartansson (adalsteinn@dv.is)


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum