7. sinnum fleiri tilkynntir á Fésbók

 

7. sinnum fleiri tilkynntir á Fésbók

Stjórnendum Fésbókarinnar í Bretlandi berast nú sjö sinnum fleiri tilkynningar frá ungum notendum um grunsamlega hegðun á síðunni eftir að byrjað var að bjóða upp á neyðarhnapp á henni í síðasta mánuði.

Notendur geta hlaðið niður sérstökum hnappi sem er beintengdur við CEOP, hálfopinbera stofnun sem tengd er bresku lögreglunni og annast barnavernd í raunheimi og á netinu í Bretlandi. Hnappurinn er kynntur með auglýsingum sem beint er til fésbókarnotenda á aldrinum þrettán til átján ára. Unglingarnir eru hvattir til að tilkynna grunsamlega hegðun manna sem hugsanlega séu kynferðisbrotamenn sem ætli að nota síðuna til að finna fórnarlömb. Tæplega 55 þúsund notendur hafa hlaðið hnappnum niður. Frá 12 júlí hafa borist 111 tilkynningar en þær voru aðeins 28 mánuðinn á undan.


	

 

frettir@ruv.is


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum