Facebook notkun kostar Breta 14 milljarða punda

 

Facebook er tímaþjófur að margra mati.

Facebook er tímaþjófur að margra mati.

 
Tækni & vísindi | mbl.is | 5.8.2010 | 13:34

Facebook notkun kostar Breta 14 milljarða punda

 Samskiptasíður á borð við Facebook og Twitter kosta breskt efnahagslíf 14 milljarða punda árlega vegna vinnutaps sem notkun síðanna veldur. Helmingur vinnandi Breta viðurkennir að uppfæra daglega „stöðu sína“ á samskiptasíðum í vinnunni og þriðjungur eyðir hálftíma á dag til verksins. Tvær milljónir manna, eða um 6% bresks vinnuafls, viðurkenna að eyða meira en hálftíma á dag í að skoða síður vina sinna, bæta inn myndum, myndskeiðum og fleiru. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem Telegraph greinir frá. Til samanburðar leiddi sambærileg rannsókn í fyrra í ljós að fólk eyddi um 40 mínútum á viku að meðaltali inni á samskiptasíðum.

Samdráttur í framleiðni sem þessi mikla notkun veldur er talinn kosta breskt efnahagslíf 14 milljarða punda samkvæmt rannsókninni sem MyJobGroup framkvæmdi og náði til þúsund Breta.

Margur Bretinn er þó í afneitun er kemur að notkun samskiptasíðna. Aðeins 14% þeirra viðurkenndu að ítrekað innlit á síðurnar drægi úr framleiðni þeirra og 10% héldu því fram að notkun Facebook og Twitter í vinnutíma yki afköstin. Ekki kemur því á óvart að flestir, eða um 33% þátttakenda í könnuninni, vildi alls ekki að bannað yrði að skoða samskiptasíður í vinnutíma.


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum