Olga Hanna framkvæmdastjóri Heimilis- og skóla

 

Olga Hanna möller, nýráðinn framkvæmdastjóri Heimilis- og skóla.

Olga Hanna möller, nýráðinn framkvæmdastjóri Heimilis- og skóla.

 
Innlent | mbl.is | 5.8.2010 | 19:57

Olga Hanna framkvæmdastjóri Heimilis- og skóla

Nýr framkvæmdastjóri, Olga Hanna Mölller hefur hafið störf hjá Heimili og skóla - landssamtökum foreldra. Olga Hanna hóf störf þann 1. ágúst síðastliðinn.

Olga Hanna Möller er viðskiptafræðingur, cand. oecon., að mennt frá Háskóla Íslands og er einnig með M.Sc. í alþjóðaviðskiptum og hagfræðum frá viðskiptadeild háskólans í Álaborg, Danmörku. Hún er gift Helga Rúnari Jónssyni og þau eiga þrjú börn saman. Einnig á hún tvö stjúpbörn.

Olga Hanna hefur meðal annars starfað sem aðalbókari hjá Þjóðleikhúsinu, forstöðumaður áætlana- og hagdeildar hjá Landspítalanum, fjármálastjóri hjá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og sveitarstjóri á Tálknafirði.

Heimili og skóli - landssamtök foreldra eru frjáls félagasamtök sem starfa í þágu foreldra. Heimili og skóli annast upplýsingar og ráðgjöf um menntunar- og uppeldismál til foreldra, foreldrafélaga, skólaráða og annarra. Heimili og skóli eru einnig Netöryggismiðstöð Íslands og annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins SAFT að öllu leyti fyrir Íslands hönd. Helstu markmið samtakanna eru að standa vörð um réttindi barna til menntunar og þroska og beita sér fyrir auknum áhrifum foreldra á skólastarf.  


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum