Táningar sem verða háðir Netinu eru meira en tvöfalt líklegri til að verða þunglyndir en þeir sem flakka um vefinn með hófsamlegri hætti, að því er fram kemur í rannsókn sem kynnt var í dag.
Rannsóknin birtist í Archives of Pediatric and Adolescent Medicine. Niðurstöðurnar byggjast á svörum 1.041 svarenda á táningsaldri í Guangzhou í suðausturhluta Kína. Þeir fylltu út spurningablað svo hægt væri að komast að því hvort netnotkun þeirra gæti talist óeðlilega mikil. Einnig voru þeir metnir með tillliti til þess hvort þeir hefðu tilhneigingu til kvíða eða þunglyndis.
Flestir táninganna, það er meira en 940 þeirra, notuðu Netið eðlilega. Hins vegar töldust 62 hafa í meðallagi sjúklega tilhneigingu til netnotkunar og 2% töldust nota netið á „alvarlega sjúklegan hátt“.
Andleg heilsa nemendanna var könnuð níu mánuðum síðar. Rannsakendur komust að því að þeir táninganna sem höfðu ekki stjórn á netnotkun sinni eða notuðu það á óskynsamlegan hátt voru um það bil 2,5 sinnum líklegri til að þróa með sér þunglyndi en hinir sem notuðu Netið á heilbrigðan hátt.
Jafnvel þótt tekið væri tillit til streitu sem fylgdi námi táninganna kom í ljós að veffíklarnir voru 1,5 sinnum líklegri til að líða af þunglyndi en hinir sem notuðu Netið hóflegar.
Höfundar rannsóknarinnar telja niðurstöðurnar benda til þess að afleiðingar sjúklegrar netnotkununar ungs fólks, sem líður ekki af geðrænum kvillum í upphafi, geti verið þunglyndi.