Búlgarska lögreglan hefur lokað fjórum vinsælum niðurhalsvefjum (torrent-síðum). Er þetta liður í stærstu aðgerð búlgörsku lögreglunnar gegn sjóræningjastarfsemi á netinu.
Vefirnir, nanoset.net, rapidadd.com, 4storing.com og afasta.com, voru þekktir fyrir ólöglega dreifingu bóka, kvikmynda, leikja, tónlistar og hugbúnaðar.