
Mark Zuckerberg, höfundur Facebook, hefur legið undir ámælum vegna bágrar gæslu síðunnar á persónuupplýsingum. Reuters
Tölvuþrjótar ætla að leggja sitt af mörkum til að aðstoða fólk við að hafa betri stjórn á persónuupplýsingum sínum á Facebook. Chris Conley, meðlimur tæknisviðs bandarísku einstaklingsfrelsissamtakanna, ACLU, sýndi gestum DefCon ráðstefnunnar í Las Vegas á dögunum veglegt vopnabúr með tólum sem stjórna dreifingu upplýsinga á samskiptavefnum.
„Tólanna er þörf, því fólk stjórnar ekki sínum einkahögum og skilur ekki nógu vel,“ sagði Conley eftir kynninguna og bætti við: „Þau gefa fólki valmöguleika.“
Conley skrifaði forrit sem sýnir hvernig forrit á Facebook (e.application) nálgast myndir, færslur eða önnur gögn á vefnum. Með forriti Conleys getur fólk séð hvaða persónuupplýsingar önnur forrit viða að sér af síðunni þeirra.
Fregnir af vandræðum Facebook við að halda utan um persónuupplýsingar notenda kunna að gleymast þegar fólk sest fyrir framan tölvuna, en forrit Conleys fangar athyglina með málefninu sem skiptir alla máli - þeim sjálfum.
„Fólk vill gjarnan heyra um það sjálft, það er það sem Facebook er svo fært í,“ segir Ceren Ercen, sem vann um stutt skeið fyrir samskiptavefinn og gengur um í bol með áletruninni „Önugur, fyrrum starfsmaður Facebook.“ Hún segir að fólk geri ekki nógu mikið í sínum málum, þrátt fyrir að það hafi áhyggjur.
„Langtímamarkmiðið er að forritin verði úrelt, því Facebook hafi tekist á við þessi vandamál á einhvern hátt,“ segir Chris Conley. „Við myndum vilja að Facebook gerði þetta.“
Hægt er að nálgast forrit Conleys á vefsíðunni dotrights.org, en nú þegar hafa um 150.000 manns notfært sér þau.