YouTube hefur brugðist við ákalli notenda síðunnar og ákveðið að lengja heildarlengd myndskeiða um fimm mínútur. Myndskeiðið geta nú orðið 15 mínútna löng í stað 10. Nú geta allir fengið sínar 15 mínútur af frægð, með bókstaflegum hætti.
YouTube er með þessu að bregðast við aukinni samkeppni frá myndbandavefnum Hulu, auk þess sem YouTube vill halda notendum lengur á vefnum.
Á hverri mínútu eru settar 24 klukkustundir af myndefni inn á YouTube vefinn.