Microsoft þróar spjaldtölvu

 

Microsoft vinnur að því hörðum höndum ásamt fleiri tölvufyrirtækjum að smíða spjaldtölvu sem geti skákað iPad frá Apple.

Microsoft vinnur að því hörðum höndum ásamt fleiri tölvufyrirtækjum að smíða spjaldtölvu sem geti skákað iPad frá Apple. Reuters

 
Tækni & vísindi | AFP | 29.7.2010 | 21:50

Microsoft þróar spjaldtölvu

Brýnasta verkefni Microsoft nú er að þróa spjaldtölvu sem keyrir Windows, að því er Steve Ballmer, forstjóri Microsoft, sagði í dag. Hann lét þessi orð falla á fundi með fjármálasérfræðingum í höfðustöðvum Microsoft. Fundurinn var sendur út á netinu.

Hann sagði að Microsoft yrði að leggjast á eitt með samstarfsfyrirtækjum á sviði vélbúnaðarsmíði. Markmiðið er að smíða spjaldtölvu sem getur keppt við hina vinsælu iPad tölvu frá Apple. 

Ballmer sagði að Microsoft vinni að verkefninu með fyrirtækjum á borð við  Hewlett-Packard, Lenovo, Asus, Dell, Samsung, Toshiba, og Sony. Markmiðið er ekki að búa til „bara eitthvað heldur að koma með vörur sem fólk virkilega langar að kaupa.“ 

Ballmer lét jákvæð orð falla um iPad spjaldtölvuna en hún mætir þörfinni fyrir tölvur með snertiskjám sem fylla bilið á milli snjallsíma og kjöltutölva.


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum