Skæður tölvuþrjótur handtekinn

 

Tölvuvírusinn er mjög skæður.

Tölvuvírusinn er mjög skæður. Kristinn Ingvarsson

 
Tækni & vísindi | mbl.is | 28.7.2010 | 12:12

Skæður tölvuþrjótur handtekinn

Tölvuþrjótur sem talin er bera ábyrgð á að sýkja 12,7 milljónir tölva hefur verið handtekinn í Slóveníu.

Maðurinn er þekktur undir nafninu Iserdo og er 23 ára gamall.  Hann er talinn bera ábyrgð á tölvuvírusinum mariposa virus, sem er líka þekktur undir nafninu butterfly.

Þessi vírus er talinn sá skæðast á þessu ári. Hann var hannaður til að stela persónulegum upplýsingum fólks um fjármál. Vírusinn hefur fundist í heimabönkum og í tölvum stórra fyrirtækja.

Yfirvöld í nokkrum löndum hafa unnið saman að rannsókn málsins. Í desember í fyrra voru þrír menn handteknir sem grunaðir eru um að tengjast þessu máli.


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum