Bandarískir eigendur iPhone síma geta hér eftir með löglegum hætti látið opna símana svo þeir geti keyrt hugbúnað, sem Apple Inc. hefur ekki lagt blessun sína yfir. Breytingar, sem bandarísk stjórnvöld hafa gert á reglum um höfundarrétt, kveða á um þetta.
Reglurnar kveða einnig á um að eigendur símanna geti skipt um símafélag án þess að Apple leggi blessun sína yfir það.
Apple mótmælti því að reglunum yrði breytt og taldi að ef leyft yrði að „opna" símana væri hætta á að þeir myndu skemmast eða verða óvarðir fyrir tölvuveirum og öryggisgöllum.
Apple er með einkaréttarsamning við símafélagið AT&T í Bandaríkjunum.