Forstjóri CCP: Góð auglýsing fyrir fyrirtækið enda er Apple þekkt fyrir að velja ekkert slor!

 

28. júl. 2010 - 20:00

Forstjóri CCP: Góð auglýsing fyrir fyrirtækið enda er Apple þekkt fyrir að velja ekkert slor!

iMac borðtölva með skjámynd úr leiknum Eve Online.

iMac borðtölva með skjámynd úr leiknum Eve Online. Apple

Forstjóri CCP segir það vera góða auglýsingu fyrir fyrirtækið að myndefni af tölvuleiknum Eve Online sé notað sem skjámynd á nýjustu útgáfu iMac borðtölvunni frá Apple.

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, segist í samtali við Pressuna vera ánægður með þá ákvörðun Apple að hafa skjámynd úr leiknum Eve Online í auglýsingaherferð fyrir nýju iMac tölvuna.

Orðrétt segir Hilmar:

Þetta er ákveðinn gæðastimpill fyrir okkur enda er Apple þekkt fyrir að velja ekkert slor. Þetta minnir líka fólk á það að við erum einnig með Apple útgáfu af leiknum. Það er eitthvað sem ekki allir vita. Við hvöttum þá hjá Apple til þess að skoða myndir úr leiknum og þeim hefur litist vel á þær.

Aðspurður hvort ný útgáfa af leiknum sé í bígerð segir Hilmar:

Við erum með tvær útgáfur á ári, önnur þeirra kom í maí en hin kemur í nóvember og verður hún sérstaklega stór. Þá verður meðal annars karakterkerfið endurgert svo hægt er að skapa persónur í fullri stærð.


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum