Setti svæsna ljósmynd á Face- book síðu félagans: Greiðir stórfé í skaðabætur

 

29. júl. 2010 - 07:00

Setti svæsna ljósmynd á Face- book síðu félagans: Greiðir stórfé í skaðabætur

Breskur námsmaður lenti heldur illa í því þegar fyrrverandi vinur hans setti svæsna ljósmynd á Facebook síðu hans. Mennirnir höfðu verið að rífast harkalega og hefndi maðurinn sín með þessum hætti. Málið fór fyrir breska dómstóla sem dæmdi fórnarlambinu væna fúlgu skaðabætur.

Hinn 24 ára gamli Jeremiah Barber var dæmdur til að greiða fyrrverandi vini sínum, Raymond Bryce, 17 þúsund sterlingspund í skaðabætur. Dómarinn taldi atvikið alvarlegt þar sem Bryce átti rúmlega 800 Facebook vini þegar atvikið átti sér stað.

Rifrildið snerist um uppgjör á smávægilegri skuld sem Barber taldi sig eiga inni hjá félaganum. Þegar rifrildinu lauk fóru þeir hver í sína áttina en seinna um kvöldið leit Bryce á Facebook síðuna sína;

Ray, þú ert hrifinn af börnum og ert klárlega hommi! Ég er viss um að þú ert ánægður með myndina sem ég setti á síðuna þína. hahaha

Bryce vandaði félaganum ekki kveðjurnar þegar hann bar vitni fyrir dómnum;

Hann sakaði mig um að barnaníðingur með samkynhneigðar hvatir, en hvorugt er satt! Myndin sem hann setti á vegginn minn var andstyggileg og olli mér og mínum Facebook vinum miklu hugarangri.

Bryce, sem er lagastúdent, sagði að tveir vina hans hefðu skilið eftir ummæli við myndina og allir 800 vinirnir hefðu getað séð myndina.

Í ljósi alvarleika brotsins dæmdi dómarinn Barber til þess að greiða 10 þúsund pund í skaðabætur.


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum