Ósmekklegur Facebook-hópur til skoðunar lögreglu: Gæti varðað við almenn hegningarlög
29. júl. 2010 - 13:50
Ósmekklegur Facebook-hópur til skoðunar lögreglu: Gæti varðað við almenn hegningarlög
www.facebook.com
Facebook-síða sem ber yfirskriftina „Leyfum eyðingar á nýbornum börnum fyrir þá sem gleymdu fóstureyðingu“ gengur nú manna á milli á netinu.
Svo virðist sem um einhvers konar grín sé að ræða meðal ungmenna en alls eru skráðir 48 meðlimir í hópnum, þar af eru 45 skráðir sem stjórnendur hópsins. Allt virðast þetta vera ungmenni á aldrinum 15-20 ára sem hafi tekið sig saman og sent hvert öðru boð um að ganga í hópinn.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur síðan ekki komið inn á borð hennar en málið verði rannsakað ef um brot gegn almennum hegningarlögum sé að ræða.
Friðrik Már Björgvinsson, yfirmaður lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að kanna verði ábyrgð stjórnenda slíkra síðna ef um lögbrot sé að ræða. Tekur hann fram að hann hafi ekki skoðað þessa síðu en bendir á að tjáningarfrelsinu fylgi ábyrgð sem menn verði að axla brjóti þeir lög.
Hafa nokkrir ósáttir einstaklingar látið óánægju sína í ljós með því að skilja eftir skilaboð á svokölluðum „vegg“ síðunnar. Hefur meðal annars verið bent á að yfirskriftin beri það með sér að verið sé að hvetja til morða á nýfæddum börnum.
Ætla má að stofnendur síðunnar séu með þessari baráttu að vísa til 212. gr. almennra hegningarlaga miðað við yfirskriftina en greinin fjallar um atvik þar sem móðir deyðir nýfætt barn sitt í neyð strax eftir fæðingu. Refsing við því geti þá varðað fangelsi allt að sex árum.