Sama GSM-kerfi á Íslandi og í Noregi þar sem mönnum hefur tekist að hlera síma nágrannans
30. júl. 2010 - 14:00Vignir Már Lýðsson
Sama GSM-kerfi á Íslandi og í Noregi þar sem mönnum hefur tekist að hlera síma nágrannans

Sama dulkóðunarkerfi er á íslenska GSM-kerfinu og í Noregi þar sem hópi tölvuþrjóta hefur tekist að afkóða hið svokallaða A5/1 kerfi og hanna forrit sem hægt er að nota til að hlera símtöl milli manna.
Pressan greindi frá frétt norska blaðsins Aftenposten í morgunum afrek hópsins en samkvæmt upplýsingum frá símafyrirtækinu Vodafone mun vera gríðarlega erfitt að afkóða kóðann sem um ræðir.
Tæknimaður hjá fyrirtækinu sem Pressan ræddi við sagði sama kerfi vera í notkun á Íslandi og í Noregi en hann hefði ekki haft spurnir af því að nokkurn tíma hafi komið upp hlerunartilfelli á Íslandi þar sem mönnum hefur tekist af afkóða kerfið líkt og í Noregi.
Gífurlega flókið mun vera að komast fram hjá kóðanum og þarf öflugan tölvubúnað og viðamikla þekkingu og þetta því ekki á færi hvers sem er.
Sagði tæknimaðurinn að hæpið sé að menn geti markvisst aflað sér upplýsinga eða hlerað símtöl með góðu móti með því einu að afkóða A5/1 kóðann. Venjulegt símtal milli manna fari í gegnum allt að sex til sjö sendistöðvar og þyrfti viðkomandi hlerari að vera við alla sendana samtímis.
Þetta sé ekki þannig að menn geti valið einstaka síma og hlustað á ákveðin símtöl.
Mikið samstarf er meðal íslenskra símfyrirtækja og eftirlitsaðila á borð við Póst- og fjarskiptastofnun alþjóðlegra símasamsteypa. Fái þau tilkynningar að utan komi upp tilfelli um að tölvuþrjótar reyni að komast inn á kerfin en engin slík tilkynning hafi borist enn sem komið er.
Hinn svokallaði A5/2 kóði, sem sambærilegur er þeim sem notaður er nú, var afkóðaður fyrir nokkrum árum síðan af háskólastúdentum í Bandaríkjunum. Var talað um að GSM-kerfið væri þar með liðið undir lok en ekkert varð þó af þeim dómsdagsspám.
Forritið sem hannað var í Noregi virkar ekki til að komast fram hjá 3G-kerfinu og eru því eldri símar einna helst í hættu á að verða fyrir barðinu á óprúttnum mönnum.