Neyðarhnappur á Facebook í haust: Stórt STOPP merki
pressan.is 20. júl. 2010 - 07:30
Neyðarhnappur á Facebook í haust: Stórt STOPP merki - Búist við rugli til að byrja með
Allsherjarneyðarhnappur fyrir íslenska Facebook notendur sem og aðrar vefsíður er í fullri vinnslu. Hnappurinn verður klassískur í útliti með stóru STOPP-merki. Aðstandendur búast við allskonar rugl skilaboðum fyrst eftir að hnappurinn verður kynntur meðal íslenskra barna og unglinga.
Guðberg K. Jónsson, formaður SAFT, netöryggismiðstöðvar Íslands, segir að flestar þjóðir innan Evrópusambandsins vinni að endurskipulagningu ábendingarlína á internetinu til þess að gera það öruggara fyrir börn og unglinga. Hann segir að þartilgerður öryggishnappur, sem hægt er að koma upp til dæmis á Facebook, sé í bígerð á Íslandi. Hann segir þetta risastórt verkefni í hverju landi fyrir sig, auk þess sem samvinna er milli landa.
Eins og staðan er núna er búið að gera þarfaskrift, síðan förum við í að forrita og ákveða hvernig hnappurinn lítur út, hvað hann mun innihalda og hvernig hann virkar.
Guðberg K. Jónsson, formaður SAFT, segir að íslenski neyðarhnappurinn komi til með að hafa klassískt útlit á sér með stóru STOPP-merki.
Hann mun í stuttu máli virka þannig að ef þú ert á síðu, sem hefur sett upp neyðarhnappinn, og þú rekst á efni sem er ólöglegt ýtir þú á hnappinn. Þá kemur upp gluggi þar sem þú hakar við eða skilgreinir hvers eðlis efnið er. Síðan sendir þú einfaldlega ábendinguna sem ratar á réttan stað. Ef um lögbrot er að ræða lendir ábendingin hjá lögreglunni en ef um minniháttar ábendingu er að ræða endar hún hjá þjónustuaðila viðkomandi síðu.
Guðberg segir að SAFT stefni að því að ábending netnotanda verði komin í hendur starfsmanns innan sólarhrings, en 24 klukkustundir eru efstu tímamörkin. Þó verða mörg tilvik þar sem ábending verði komin í hendur starfsmanns innan fáeinna mínútna. Það sem tekur við eftir það gæti tekið lengri tíma, til dæmis ef um kynferðisafbrot á erlendri heimasíðu er að ræða, en þá fara málin til Europol. Guðberg gerir ráð fyrir því að eftir að öryggishnappurinn verður kynntur komi tímabil þar sem talsvert verði um ábendingar.
Við erum ekkert að fá voðalega mikið af ábendingum núna þannig að ég reikna ekki með að þurfa að hafa þriggja manna vaktir allan sólarhringinn. Það má reikna með að það komi allskonar rugl skilaboð inn. En aðalatriðið er að þessi vörn þarf að vera til staðar fyrir börn og unglinga á netinu. Það má ekki vera of erfitt fyrir þau að tilkynna ef þau lenda á vafasömu efni á netinu.
Hann segir að SAFT séu í viðræðum við Facebook um það að koma upp öryggishnappinum. Hann segist ekki ólíklegt að í framtíðinni verði þetta staðalbúnaður víða á netheimum.
Vonandi getum við kynnt þennan hnapp í haust. Hann verður kynntur með þeim hætti að þeim sem búa til eða dreifa efni á netinu og halda úti vefsíðum þyki eftirsóknarvert að setja hnappinn upp hjá sér.