Facebook-neyðarhnappur

 

Facebook-neyðarhnappur

Til stendur að gera notkun hins vinsæla samskiptavefs Facebook öruggari fyrir börn og unglinga með því að setja upp neyðarhnapp fyrir notendur hérlendis. Guðberg K. Jónsson, verkefnisstjóri hjá SAFT segist vikulega fá ábendingar vegna eineltismála á Facebook. Með nýlegum neyðarhnappi fyrir breska Facebook notendur geta börn tilkynnt um óeðlilegt athæfi fólks á síðunni. Guðberg Jónsson, verkefnisstjóri SAFT, segir unnið að uppfærslu íslensks ábendingarhnapps, þannig að sá hnappur taki einnig við ábendingum um önnur brot en kynferðisbrot. Hann segir í vinnslu að koma upp slíkum hnappi fyrir íslenska Facebook notendur, þar sem einnig verður vísað beint í ráðgjafar- og hjálparlínu.

	

 

frettir@ruv.is


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum