Seðlabankinn bannar Facebook: Má bara skoða vefinn í frítíma því hann er ekki vinnutengdur

 

19. júl. 2010 - 14:00

Seðlabankinn bannar Facebook: Má bara skoða vefinn í frítíma því hann er ekki vinnutengdur

Ábyrgir foreldrar hafa oft þann sið að takmarka facebooknotkun barna sinna - Yfirmenn Seðlabankans hafa gætur á sínu starfsfólki.

Ábyrgir foreldrar hafa oft þann sið að takmarka facebooknotkun barna sinna - Yfirmenn Seðlabankans hafa gætur á sínu starfsfólki.

Seðlabanki Íslands hefur bannað starfsfólki sínu að nota Facebook nema í hádeginu og í kaffitímum. Ástæðan? Facebook tengist ekki vinnunni. 

Notkun samskiptavefjarins Facebook er að mati sumra hinn argasti tímaþjófur. Sú skoðun er ekki síst algeng hjá yfirmönnum á stórum vinnustöðum. Seðlabanki Íslands hefur gert ráðstafanir til þess að mæta þessum vanda - sem Facebook er - og hafa þeir bannað alla notkun á Facebook samskiptasíðunni nema á milli klukkan 12:00 og 13:00 í hádeginu og í kaffitímum. 

Arnar Freyr Guðmundsson, forstöðumaður upplýsingatæknideildar Seðlabankans, segir að í Seðlabankanum séu uppi síur sem hindri aðgang að ýmsum vefsíðum eins og gengur og gerist á vinnustöðum. 

Það eru hins vegar einungis tvær síður, Facebook og YouTube, sem séu þannig stilltar að aðgangur opnist á þær á ákveðnum tímum dags. Aðspurður um ástæðu þess að aðgangur væri hindraður segir Arnar:
Þetta kemur einfaldlega ekki vinnunni við.

Ekki eru allir starfsmenn Seðlabankans á eitt sáttir um þessa síu en formaður starfsmannafélags Seðlabakans, segist þó ekki geta sagt að mikil mótmæli hefðu komið frá starfsmönnum bankans eftir formlegum leiðum.


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum