
Smellið hér fyrir útsendingu á netinu.
Ef bein útsending dettur út, ýtið á refresh (F5)
hugsaðu áður en þú sendir
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2010 verður haldinn 9. febrúar næstkomandi undir yfirskriftinni „Hugsaðu áður en þú sendir”. Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir opnu málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl 14.30-16.30.
Fundarstjóri er Páll Óskar Hjálmtýsson.
Dagskrá
· Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, setur málþingið
· Hrannar Pétursson, forstöðumaður almennatengsla hjá Vodafone: „Ringulreiðarmálið” - Myndbirtingar barna og unglinga á netinu. Hvað segja netþjónustuaðilar?
· Einar Norðfjörð og Anna Kristína Lobers, ungmennaráði SAFT: Reynsluheimur unga fólksins: Vinasöfnun og myndbirtingar á félagsnetsíðum
· Halldór J. Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi: Friðhelgi á jaðri netsins
· Jónas Kristjánsson, ritstjóri: Þolmörkin færðust til
· Salvör Kristjana Gissurardóttir, lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands: Netsiðferði - Persónuvernd og pólitískur áróður
· Sólveig Jakobsdóttir, Rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun, Menntavísindasviði Háskóla Íslands: Félagsnet í fræðilegu samhengi: Rafræn tengsl og persónusköpun ungs fólks á netinu
· Sigríður J. Hjaltested, aðstoðarsaksóknari, Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu: Rannsókn mála tengd netinu
·
· Pallborðsumræður
· Veitingar
Málþingið verður sent beint út á netinu.
Þeir sem fylgjast með á netinu geta sent fyrirspurn á pallborð með því að senda tölvupóst á saft@saft.is.
Horfðu á myndbandið "Hugsaður áður en þú sendir" hér.