Hér má nálgast bæklinginn "Foreldrar, börn og farsímar"

Nýr forvarnarbæklingur um farsímaöryggi

Nýr forvarnarbæklingur um farsímaöryggi hefur verið gefinn út í samvinnu Vodafone og SAFT. Bæklingurinn nefnist Farsímanotkun barna og unglinga og er þar að finna nytsamleg ráð fyrir foreldra um hvernig börn geta notað farsíma á öruggan og ábyrgan hátt. Í bæklingnum er rætt um ýmsa þætti farsímanotkunar og foreldrum gefin góð ráð til að bregðast við ýmsum aðstæðum sem upp geta komið.

Notkun barna á farsímum hefur farið hratt vaxandi undanfarin ár. Símarnir bjóða upp á sífellt fleiri notkunarmöguleika, svo sem að taka ljósmyndir og hreyfimyndir, spila tölvuleiki og nota Netið í gegn um símann. Það er því nauðsynlegt fyrir foreldra að ræða farsímanotkunina við börn sín og vera vakandi fyrir hugsanlegum vanda eða óþægindum sem þau geta lent í.

Heilræði frá SAFT:

  • Ekki gefa hverjum sem er upp símanúmerið þitt og ekki gefa símanúmer upp á Netinu
  • Svaraðu ekki textaskilaboðum frá ókunnugum
  • Ekki fara og hitta einhvern sem þú þekkir aðeins í gegnum textaskilaboð eða Netið, nema tala við einhvern fullorðinn fyrst og hafa einhvern með þér
  • Fáðu alltaf leyfi áður en þú tekur mynd af öðrum
  • Farðu varlega þegar þú setur myndir á Netið. Hver sem er getur náð í þær
  • Börn eiga að láta vita ef þau verða fyrir áreiti með hringingum eða textaskilaboðum
  • Mundu að myndir, textaskilaboð eða símtöl geta valdið öðrum þjáningu. Ekki senda öðrum skeyti sem þú myndir ekki vilja fá sjálf/ur
  • Hafðu tillitssemi og kurteisi að leiðarljósi í samskiptum við aðra

Hér er hægt að nálgast bæklinginn.

Vodafone dreifir bæklingnum en einnig er hægt að nálgast hann á skrifstofu SAFT á Suðurlandsbraut 24 (4.hæð), Reykjavík.

Sjá einnig á vefsíðu Vodafone

Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum