UNGT FÓLK, NETIÐ OG RAFRÆN SKILRÍKI
Fjármálaráðuneytið og SAFT verkefnið kynna undirbúningsverkefni um notkun rafrænna skilríkja í samskiptum barna og unglinga á netinu. Markmið verkefnisins er að auka öryggi barna og ungmenna á netinu.
Leitað er að þátttakendum - kennurum og nemendum - til að taka þátt, bæði grunn- og framhaldsskóla.
Rafræn skilríki geta verið á ólíkum miðlum og notuð í ýmsum tilgangi (sjá nánar skilriki.is). Á Íslandi hafa rafræn skilríki verið notuð undanfarin ár í ýmsum verkefnum. Ríki, bankar og sparisjóðir hafa unnið að skipulagi fyrir almenna útbreiðslu rafrænna skilríkja á Íslandi og er nú hafin útgáfa rafrænna skilríkja á debetkortum og kortum án bankavirkni.
Þrátt fyrir að ýmis lönd hafi tekið í notkun rafræn skilríki hefur almennt ekki verið hægt að nota þau í samskiptum á milli landa. Evrópusambandið styrkir nú verkefnið STORK (Secure Identity Across Borders Linked) þar sem markmiðið er að samræma auðkenningu milli Evrópulanda, þ.á.m. rafræn skilríki. Þetta er gert með hönnun kerfis sem gerir þjóðum kleift að lesa og treysta skilríkjum annarra landa. Þátttökulönd vinna nú að sameiginlegri lausn sem styðst við opna staðla og hugbúnað.
Fjármálaráðuneytið og SAFT eru aðilar að STORK og munu leiða tilraunaverkefni um þróun og prófun á viðmóti fyrir örugg samskipti á milli barna og unglinga á netinu á milli landa.
Ætlunin er að fá nemendur og kennara í mismunandi Evrópulöndum til þess að prófa notkun rafrænna skilríkja þegar farið er inn á svæði á netinu. Rafrænu skilríkin eru kort sem hver þátttakandi fær. Tveir eða fleiri skólar frá sitt hvoru landinu munu vinna saman að verkefni tengdu netöryggi, sem viðkomandi kennarar koma sér saman um (þ.e. kennararnir fá uppkast að verkefni frá skipuleggjendum sem útgangspunkt, en stýra að öðru leyti innihaldi þess). Í þeim skólum sem taka þátt gæti verkefnið átt vel við lífsleikni og/eða upplýsingatækni (sem dæmi).
Nemendur og kennarar myndu hvort tveggja fræðast og fjalla um netöryggi og reyna á hagnýtan hátt að nota öryggisbúnað eins og rafræn skilríki. Aldur þeirra nemenda sem taka þátt er annars vegar 14 til 16 ára og hins vegar 16 til 18 ára. Ætlunin er að rafrænu skilríkin muni tryggja, að aðeins þeir sem eru á þessu aldursbili komist inn á vefsvæðið sem á að nota. Notast verður við Moodle-viðmót, þar sem nemendur geta spjallað og unnið að verkefnum tengdum netöryggi. Upplýsingar um Moodle: http://moodle.org/ og http://is.wikipedia.org/wiki/Moodle
Reiknað er með að við tilraunaverkefnið muni nemendur vinna að gerð jafningjafræðsluefni um jákvæða og örugga netnotkun. Við lok verkefni verður efnt til happdrættis meðal þátttakenda. Fjölmargir veglegir vinningar verða í boði.
Skráning og upplýsingar hjá SAFT: saft@saft.is