Útgáfudagur:  22.10.2010

 

STORK tilraunaverkefnið SaferChat – Öruggara spjall fyrir börn og unglinga

Samskipti ungs fólks í Evrópu gerð öruggari með rafrænum skilríkjum

 

Reykjavík, 22 nóvember 2010 – STORK, verkefni styrkt af Evrópusambandinu sem hefur að markmiði að gera netsamskipti á milli landa með rafrænum skilríkjum möguleg, tilkynnir að tilraunaverkefnið SaferChat um öruggara spjall ungs fólks á netinu er hafið. Tilraunaverkefnið mun skapa öruggan vettvang þar sem ungt fólk frá þátttökuríkjum, á aldrinum 14-18 ára, getur notað spjallrásir með aðstoð rafrænna skilríkja við innskráningu.

Það er mjög mikilvægt fyrir börn og unglinga að þeim sé gert kleift að nota netið til samskipti við jafningja án þess að eiga á hættu að fullorðnir einstaklingar geti nálgast þau í vafasömum tilgangi. Tilraunaverkefnið er í höndum ungmennaráða Netöryggismiðstöðva og valdra bekkja grunnskóla á Íslandi og í Austurríki. Í vetur mun þetta unga fólk vinna að gerð jafningjafræðsluefnis í Moodle, sem er vinsæl hugbúnaðarlausn fyrir rafrænt námsumhverfi, en það hefur verið sett upp og tengt við grunngerð STORK. Nemendur og kennarar frá þátttökulöndum munu geta skráð sig inn í námsumhverfið með rafrænum skilríkjum og unnið þar saman að verkefnum, deilt skjölum og notað spjallrásir, með það að markmiði að búa til jafningjafræðsluefni um öruggari og jákvæða netnotkun.

Haraldur Bjarnason hjá fjármálaráðuneytinu stýrir SaferChat tilraunaverkefninu hjá STORK. Hann tekur fram að „börn þurfa að geta notað Netið á eins öruggan hátt og hægt er við heimanám, til samskipta og til skemmtunar. Með þessu tilraunaverkefni erum við að prófa lausn sem mun auka öruggi þeirra á spjallrásum á milli landa með aðstoð rafrænna skilríkja.“

Ísland og Austurríki taka þátt í tilraunaverkefninu SaferChat um öruggara spjall ásamt netöryggismiðstöðvum landanna og eTwinning áætluninni. Fjármálaráðuneytið hefur yfirumsjón með verkefninu á Íslandi en SAFT – Netöryggismiðstöð Íslands sér um framkvæmdina.


Um STORK (www.eid-stork.eu)

STORK er verkefni í Upplýsingatækniáætlun Evrópusambandsins undir Samkeppnis-  og nýsköpunaráætluninni

(CIP). 17 aðildarríki taka þátt í STORK: Austurríki, Belgía, Bretland, Eistland, Finnland, Frakkland, Holland, Ítalía, Litháen, Lúxemborg, Portúgal, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Þýskaland og Ísland  (sem aðili að EES). Samkeppnis- og nýsköpunaráætluninni Evrópusambandsins (CIP) miðar að því að efla samkeppnishæfni evrópskra fyrirtækja. Hluti CIP, Upplýsingatækniáætlunin, beinist að örvun á nýsköpun og  samkeppnishæfni í gegnum víðtækari  upptöku og ákjósanlega notkun borgara, fyrirtækja og stjórnvalda á upplýsinga-  og fjarskiptatækni. Tímasetningin og markmið STORK henta mjög vel til að hafa mikil áhrif og leggja af mörkum í átt að þeim markmiðum sem sett voru fram í ráðherrayfirlýsingunni í Lissabon (2007), það er að segja samvirkni milli aðildarríkja og minni stjórnsýslulegri  byrði. Í aðgerðaráætluninni i2010 fyrir rafræna stjórnsýslu viðurkenndu aðildarríkin mikilvægi stjórnunar á rafrænni auðkenningu. Þau miða að því að koma á öruggum og þægilegum rafrænum kerfum fyrir Evrópubúa og fyrirtæki til að hafa aðgang að opinberri þjónustu í hvaða aðildarríki sem er. Kerfin ættu að virka jafnt í héraði sem og á landsvísu og vera í samræmi við lög og reglur um persónuvernd.

 

Nánari upplýsingar:

http://www.eid-stork.eu/­

 

Tengiliður fjölmiðla:

STORK Press Office

press@eid-stork.eu


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum