Sögusamkeppni SAFT - 14 ára fulltrúi SAFT á verðlaunahátíð í París 9. desember 2005

Við afhendingu verðlauna í sögusamkeppni SAFT þann 30. ágúst sl. var Ingibjörg Ólöf Benediktsdóttir, nemandi í 9. bekk í Varmalandsskóla í Borgarfirði valin til að vera fulltrúi Íslands og SAFT verkefnisins á evrópskri verðlaunahátíð sögusamkeppna um Netið, sem haldin var í París föstudaginn 9. desember sl.
Á verðlaunahátíðinni komu saman 17 börn frá 16 Evrópulöndum sem unnu sögusamkeppni um örugga netnotkun og töfra Netsins í heimalöndum sínum.

»Skoðið dagbók og myndir Ingibjargar Ólafar (Ingu Lóu) úr ferðinni.

Hér er Ingibjörg Ólöf ásamt móður sinni, Sigríði Ævarsdóttur,


Ingibjörg Ólöf í hópi verðlaunahafanna. Hún er 5. frá vinstri


Ný bók,  Tales from the Cyber-Kingdom of Internet,  með verðlaunasögunum 17 var kynnt við þetta tækifæri. Sögurnar eru eftir grunnskólanema frá 16 löndum Evrópu og fengu verðlaunahafarnir fyrstu eintökin afhent. Saga Ingibjargar Ólafar heitir Undarlegir atburðir, og eins og hinar verðlaunasögurnar er hún á tveimur tungumálum í bókinni, bæði á ensku og móðurmáli höfundar. Formála bókarinnar ritar Viviane Reading framkvæmdastjóri Evrópusambandsins í málefnum upplýsingasamfélagsins


Fyrirtækið Microsoft styrkti verðlaunahafana frá löndunum 16 til að koma til Parísar ásamt forráðamanni og dvelja tvo daga í borginni. Fyrri daginn, föstudaginn 9. desember, var verðlaunahátíðin haldin á Concorde Lafayette hótelinu í París. Eftir glæsilegan hádegisverð voru börnin kölluð upp á svið og fengu afhenta viðurkenningu frá Horst Forster yfirmanni á sviði upplýsingasamfélagsins hjá Evrópusambandinu ásamt fyrstu eintökunum af Tales from the Cyber-Kingdom of Internet.

Eftir hátíðina var farið með börnin upp í ljósum skreyttan Eiffelturninn sem kominn var í jólabúning.  Daginn eftir fór hópurinn svo í skemmtigarðinn Euro-Disney skammt fyrir utan París.

Sögusamkeppninni um Netið, örugga netnotkun og töfra Netsins var hleypt af stokkunum á Alþjóðlega netöryggisdaginn 8. febrúar sl. í 18 löndum auk Íslands. Samstarfsnetið INSAFE stóð fyrir keppninni í Evrópu. Þátttakendur í samkeppninni voru grunnskólanemar í tveimur aldursflokkum, 9-12 ára og 13-16 ára. Verðlaun í sögusamkeppni SAFT voru afhent af Forseta Íslands, hr. Ólafi Ragnari Grímssyni við hátíðlega athöfn þann 30. ágúst sl. Fyrstu verðlaun í hópi yngri höfunda hlaut Fríða Theodórsdóttir, nemandi í Klébergsskóla á Kjalarnesi.

 

INSAFE er samstarfsnet þeirra sem eru að vinna að vakningu um örugga og jákvæða netnotkun barna og unglinga í Evrópu og var sett á laggirnar af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.  Samstarfið er leitt af European Schoolnet (Evrópska skólanetinu). Nú eru 23 verkefni í 21 landi aðilar að INSAFE.

 

 


 

31.8.2005
Verðlaun í sögusamkeppninni afhent við hátíðlega athöfn

Verðlaun í sögusamkeppni SAFT voru veitt við hátíðlega athöfn í Borgarbókasafninu við Tryggvagötu í Reykjavík í gær, þriðjudaginn 30. ágúst. Sex börn og unglingar og einn skóli, Heiðarskóli í Reykjanesbæ tóku við glæsilegum verðlaunum úr hendi forseta Íslands, herra Ólafs Ragnars Grímssonar sem einnig flutti ávarp við athöfnina. Ingibjörg Ólöf Benediktsdóttir, 14 ára, úr Varmalandsskóla í Borgarfirði var valin til að fara ásamt forráðamanni á lokahátíð sögusamkeppninnar í Evrópu sem haldin verður í París í Frakklandi þann 9. desember nk.. Þar koma saman verðlaunahafar landanna 19 sem héldu sams konar sögusamkeppni. Saga Ingibjargar Ólafar verður þýdd á ensku og gefin út á bók ásamt sögum verðlaunahafa frá hinum löndunum.
Verðlaun voru veitt í tveimur aldursflokkum og verðlaunahafarnir voru:

Yngri flokkur 9-12 ára:

1. verðlaun:
Fríða Theodórsdóttir, 10 ára, Klébergsskóla á Kjalarnesi fyrir söguna Netferðalagið.
Hún hlaut Sony Network Walkman frá fyrirtækinu Link,
 Íslenska samheitaorðabók, Svavar Sigmundsson ritstýrði, gjöf frá Pennanum og tölvuleik að eigin vali frá Senu.

2. verðlaun:
Helga Sædís Jónsdóttir 10 ára, Álftanesskóla, Álftanesi fyrir söguna Netferðin.
Hún hlaut Macmillan english dictionary að gjöf
frá Pennanum og tölvuleik að eigin vali frá Senu.

3. verðlaun:
Elín Jósepsdóttir,11 ára, Borgarhólsskóla á Húsavík fyrir söguna Netferðalag Mötu, Alpha og Netvarðar.
Hún hlaut Philips world atlas gjöf
frá Pennanum og tölvuleik að eigin vali frá Senu.

 Eldri flokkur 13-16 ára

1. verðlaun:
Ingibjörg Ólöf Benediktsdóttir, 14 ára, Varmalandsskóla í Borgarfirði fyrir söguna Undarlegir atburðir.
Hún hlaut Sony Network Walkman frá fyrirtækinu Link, Íslenska samheitaorðabók, Svavar Sigmundsson ritstýrði,  gjöf frá Pennanum og tölvuleik að eigin vali frá Senu.
Ingibjörg Ólöf var einnig valin til fara á lokahátíð sögusamkeppninnar í París í desember.

2. verðlaun:
Elín Þórsdóttir, 13 ára, Hólabrekkuskóla í Reykjavík fyrir söguna
 Björgunarleiðangurinn.
Hún hlaut Macmillan english dictionary, gjöf frá Pennanum og tölvuleik að eigin vali frá Senu.

3. verðlaun:
Stefán Jóhannsson 13 ára, Seyðisfjarðarskóla á Seyðisfirði fyrir söguna Netrallýið ógurlega.
Hann hlaut Philips world atlas gjöf frá Pennanum og tölvuleik að eigin vali frá Senu.

Skólaverðlaun:
Heiðarskóli í Reykjanesbæ fékk verðlaun fyrir glæsilega þátttöku bekkjarins 4-HS sem sendi inn 11 sögur.
Gunnar Þór Jónsson skólastjóri og Heiðrún Björk Sigmarsdóttir kennari tóku við verðlaununum.
Skólinn fékk Dell fartölvu frá EJS og Auðlegð íslenskrar tungu; Orðastaður og Orðaheimur
, orðabækur Jóns Hilmars Jónssonar í öskju. gjöf frá Pennanum.

SAFT þakkar öllu því fólki og fyrirtækjum sem lögðu til verðlaunagripi, aðstöðu og aðstoð, ekki síst Flugfélagi Íslands sem styrkti okkur myndarlega til þess að verðlaunahafarnir okkar utan af landi kæmust til þess að vera viðstödd athöfnina ásamt forráðamönnum sínum.

Sjáið frétt um verðlaunaathöfnina á vef samstarfsnets okkar í Evrópu, INSAFE:   


 

Forseti Íslands afhendir verðlaun í sögusamkeppni SAFT við hátíðlega athöfn í Borgarbókasafninu við Tryggvagötu þriðjudaginn 30. ágúst nk. kl. 14:00.

Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson mun afhenda verðlaunin og flytja ávarp við athöfnina. Einnig mun Þorvaldur Þorsteinsson formaður dómnefndar gera grein fyrir störfum nefndarinnar. Veitt verða þrenn verðlaun í hvorum aldurshópi, 9-12 ára og 13-16 ára. Auk krakkanna sem fá verðlaun fyrir sögur sínar mun einn skóli fá afhent glæsileg verðlaun fyrir framlag sitt í keppnina.
Sögusamkeppnin var haldin samtímis í 19 löndum Evrópu og verður einum verðlaunahafa boðið á sameiginlega lokahátíð sögusamkeppninnar í París þann 9. desember nk. Verðlaunasagan verður þýdd á ensku og gefin út á bók ásamt hinum verðlaunasögunum.

 


 

Frestur til að skila inn sögum í sögusamkeppni SAFT rann út þann 20. júní sl.

54 sögur bárust í keppnina. Dómnefnd verður að störfum fram í ágúst og þann 30. ágúst nk. mun forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson afhenda verðlaunin við hátíðlega athöfn.

Glæsileg verðlaun verða veitt:

  • Dell fartölva
  • Sony Netwalkman
  • Bækur
  • Tölvuleikir

Einum vinningshafa ásamt foreldri eða forráðamanni verður boðið til verðlaunahátíðar sem haldin verður í París í Frakklandi 9. desember nk. Þar munu verðlaunahafar frá löndunum sem þátt tóku í keppninni hittast og heilmikið verður um að vera. M.a. verður verðlaunahöfunum boðið í Euro-Disney garðinn fyrir utan París.


 

Um sögusamkeppnina

Hverjir geta tekið þátt:

  • Keppt er í tveimur aldurshópum: 9 - 12 ára og 13 - 16 ára.
  • Þið getið keppt tvö eða fleiri saman í hóp, eða sem einstaklingar.

Hvað þarf til að taka þátt:

Búið til sögu samkvæmt leiðbeiningunum hér fyrir neðan og sendið hana með tölvupósti á netfangið:
si-stories@saft.is

Upplýsingar sem þurfa að fylgja með:

Í tölvupóstinn ykkar þurfið þið að skrifa:

  • Nafn
  • Aldur
  • Í hvaða skóla þið eruð
  • Í hvaða bekk þið eruð

Leiðbeiningar:

Ykkur er hér með boðið í ferðalag á Netinu. Ferðafélagar ykkar eru hundurinn Alpha ásamt Netverði og stelpu sem heitir Mata. Þau elska ævintýri en þurfa á hjálp ykkar að halda til þess að lenda ekki í vandræðum á Netinu.
Þið megið velja eitthvert þeirra eða hafa þau öll með í ferðalaginu.
Hér fyrir neðan eru upplýsingar um þau.

  • Skrifið sögu þeirra – ekki fleiri en 2000 orð.
  • Bætið við ykkar eigin sögupersónum, gerið myndasögu eða hvað sem ykkur dettur í hug.
  • Sögum verður að skila á stafrænu (digital)/rafrænu formi (heimasíða, myndasaga, tölvuleikur – í raun engin takmörk þarf aðeins tengjast vefnum/tækninni.)

Ykkur er frjálst að taka hvern þann sem þið kjósið með í þessa ferð og má m.a. finna þau og fleiri skemmtilegar persónur hér á vefsíðu SAFT. Skoðið SAFT áhöfnina.

Gætið að því að virða höfundarrétt ef þið birtið myndir eða efni eftir aðra.
Þátttakendur sem ekki virða höfundarrétt verða dæmdir úr leik.

HÉR GETIÐ ÞIÐ SKOÐAÐ FERÐAFÉLAGA YKKAR OG EIGINLEIKA ÞEIRRA:

Netvörður
Öruggir nettöfrar

Eiginleikar:

  • Sér í gegn um hluti
  • Traust
  • Getur verið ósýnileg
  • Elskar að tjatta
  • Ferðast um Netið óháð tíma og rúmi
  • Sér hluti sem fara framhjá öðrum og aðrir geta ekki séð

Alpha
Öruggir nettöfrar

Eiginleikar:

  • Leitarhundur
  • Sér útfjólubláa geisla
  • Skynjar hættur
  • Elskar póst og grefur ruslpóst
  • Verndar þig
  • Góður vinur
  • Ratar alltaf heim
  • Elskar að leika sér

Mata
Öruggir nettöfrar

Eiginleikar:

  • Ræður við stærstu öldur
  • Getur talað við öll dýr í hafinu
  • Getur flogið á brimbrettinu
  • Talar táknmál
  • Notar töfra kristalla

Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum