Ábyrgur

Verndar. Dreifir upplýsingum og leiðbeiningum um ábyrga netnotkun. Gætir notenda og fylgist með aðstæðum.


Hrekklaus

Gengur illa að fóta sig á Netinu. Hún fær senda tölvuvírusa og gefur „alveg óvart“ upp persónulegar upplýsingar. Greinir ekki milli réttra og rangra upplýsinga, trúir öllu. Er auðveld bráð fyrir þá sem leggja í einelti á Netinu. Talar ekki einu sinni við foreldra sína um það.


Netvörður

Er í góða liðinu. Greinir rangar upplýsingar frá réttum. Sannreynir upplýsingar. Flettir ofan af ólöglegum verknaði, svo sem brotum á höfundarétti. Réttir hjálparhönd við allar aðstæður. Reynir að koma upp um þrjóta.

Samskiptaglöð

Notar spjallrásir og skyndiskilaboð. Skemmtir sér með vinum og spinnur samskiptakerfi á Netinu. Þekkir allan hugsanlegan tæknibúnað. Hefur tökin á tækninni og ræður við allar aðstæður.

Svalur

Leikur tölvuleiki, sækir myndbönd, tónlist og spil á Netið. Hefur mörg netföng en aðeins eitt sem foreldrum hans er kunnugt um. Kann að fjarlægja ummerki eftir heimsóknir á „svalar“ vefsíður, þannig að foreldrar hans uppgötva þær ekki. Fer framhjá vefsíum. Á sína eigin vefsíðu. Veit meira um upplýsingatækni en kennarar hans og foreldrar.

Þrjóturinn

Er í vonda liðinu. Sækir ólöglegt efni á Netið. Reynir með svikum að ginna fólk til að gefa upp persónulegar upplýsingar. Villir á sér heimildir. Hótar, stríðir og leggur í einelti. Skrifar ljótar athugasemdir í gestabækur á Netinu.

Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum